Nýheimar þekkingarsetur vill benda á styrkveitingu úr Vísinda- og rannsóknasjóði Suðurlands.

Vísinda- og rannsóknarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um náms- og rannsóknarstyrk fyrir árið 2017. Styrkurinn nemur 1.250.000 kr.
Styrkurinn er ætlaður námsfólki sem vinnur að rannsóknarverkefni til lokaprófs á háskólastigi. Verkefnið skal tengjast Suðurlandi og þjóna ótvíræðum atvinnu- og/eða fræðilegum tilgangi fyrir Suðurland eða hluta Suðurlands.
Styrkumsóknir sendist til eyjolfur@fraedslunet.is eða sigurdur@hfsu.is Umsóknarfrestur er til 10. nóvember næstkomandi. Nánari upplýsingar um sjóðinn og styrkveitingar eru að finna á vefsíðu Fræðslunetsins.

\"\"

\"\"