Árleg ráðstefna um íslenska þjóðfélagsfræði sem haldin hefur verið víðsvegar um landið verður nú í Nýheimum á Höfn dagana 13. og 14. október. Á ráðstefnunni gefst einstakt tækifæri til að hlýða á fjölda fræðimanna kynna rannsóknir sínar á hinum ýmsu málefnum þjóðfélagsins. Erindi ráðstefnunnar eru fjölbreytt; menntun, trú, byggðaþróun, ferðaþjónusta og hnattvæðing eru aðeins nokkur dæmi um viðfangsefni erindanna sem flutt verða. Gísli Pálsson, prófessor í mannfræði, og Hornfirðingurinn Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði, flytja inngangsfyrirlestra ráðstefnunnar. 

Ráðstefnan er opin öllum og aðgangur ókeypis, ekki er nauðsynlegt að sitja ráðstefnuna í heild sinni. Gestum er frjálst að koma til að hlusta á ákveðnar málstofur eða einstök erindi sem höfða sérstaklega til þeirra. Dagskrá ráðstefnunnar verður birt fljótlega bæði á heimasíðu og Facebook síðu Nýheima þekkingarseturs. 

Eitt af meginmarkmiðum Nýheima er að auka tækifæri íbúa til þátttöku í hvers konar viðburðum og verkefnum á sviði menntunar, menningar, nýsköpunar og rannsókna. Vonumst við því til þess að sem flestir nýti sér það tækifæri sem hér gefst til þess að hlýða á fjölbreytt og áhugaverð erindi um íslenskt samfélag. 

 

Sjáumst í Nýheimum. 

Hugrún Harpa 

Forstöðumaður Nýheima þekkingarseturs

\"\"