Nýheimar þekkingarsetur óskar eftir að ráða námsmann til sumarstarfa hjá setrinu.

Um er að ræða þátttöku Nýheima í úrræðum ríkisstjórnarinnar til að fjölga tímabundnum störfum fyrir námsmenn í sumar.

Ráðningin er til tveggja mánaða milli 1. júní og 1. sept 2020 og þurfa námsmenn að vera 18 ára á árinu og skráðir í nám á vor- og haustönn 2020.

Námsmaðurinn má vera skráður í hvaða nám sem er.

 

Verkefni sumarsins verða valin með hæfni umsækjanda í huga en um er að ræða tilfallandi skrifstofustörf og vinnsla við heimasíðu setursins.

Námsmaður þarf að vera sjálfstæður í vinnu, hafa gott vald á tölvuvinnslu, vel ritandi á íslensku og búa yfir öguðum og vönduðum vinnubrögðum, kostur ef viðkomandi hefur reynslu af umsjón vefsíðu eða áhuga á wordpress.

 

\"\"

Allir námsmenn, óháð námi, aldri og kyni eru hvattir til að sækja um.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi.

 

Allar frekari upplýsingar um starfið gefur Hugrún Harpa, forstöðumaður Nýheima þekkingarseturs (hugrunharpa@nyheimar.is / 470-8088)

Umsóknafrestur er til 1. júní 2020 og skulu umsóknir, ásamt ferilskrá, berast til Hugrúnar Hörpu (hugrunharpa@nyheimar.is)