\"\"

Nýheimar þekkingarsetur ásamt Vísindafélagi Íslendinga bjóða Hornfirðingum

á málþing um ungt fólk og fjölbreytileika í Nýheimum fimmudaginn 20.september kl.16. 

Allir velkomnir og heitt á könnunni.

Til umfjöllunar verða ýmis mál sem varða ungt fólk og stöðu þess

auk erinda um ungt fólk á Hornafirði og fjölmenningarmál í sveitarfélaginu.   

 

Fyrirlesarar og erindi eru eftirfarandi:

Hugrún Harpa Reynisdóttir, forstöðumaður Nýheima: „Það virkar að tala við okkur.“ 

Hildur Ýr Ómarsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar í sveitarfélaginu Hornafirði: Ungt fólk í fjölmenningarsamfélaginu Hornafirði. 

Jón Gunnar Bernburg, prófessor í félagsfræði við HÍ: Ungmenni og nærsamfélagið. 

Berglind Rós Magnúsdóttir, dósent við menntavísindasvið HÍ: „Ég er bara ekki þessi týpa.“ Skólaval, persónuvirði og tilvistarlegt öryggi meðal framhaldsskólanema. 

Þórólfur Þórlindsson, prófessor emeritus: Staða ungs fólks á Íslandi. 

 

\"\"

Vísindafélag Íslendinga var stofnað 1. desember 1918, sama dag og Ísland varð fullvalda ríki, með það í huga að öflug

vísindastarfsemi væri þjóðinni nauðsynleg til að dafna. Meðal markmiða félagsins er að styrkja stöðu vísinda í íslensku samfélagi og menningu, m.a. með því að stofna til umræðu og samræðna fólks úr ólíkum fræðigreinum sem starfar á ýmiss konar vettvangi.  

Málþingið er annað í röð sex málþinga um vísindi og samfélagslegar áskoranir sem Vísindafélag Íslendinga hefur forgöngu um á árinu í tilefni af aldarafmæli bæði félagsins og fullveldis Íslands. Á fyrsta málþinginu sem haldið var í Reykjavík í apríl voru vísindasaga og veirurannsóknir til umfjöllunar. Í október verða svo ferðamál til umfjöllunar á Akureyri en á síðari málþingum ársins verður m.a. hugað að máltækni og umhverfismálum.  

Annar liður í afmælisdagskránni er samstarf við Vísindavefinn um dagatal íslenskra vísindamanna þar sem umfjöllun um fræðimenn birtist daglega allt árið: Markmiðið er að bregða upp svipmynd af fjölbreyttri flóru blómlegs rannsóknastarfs hérlendis og þýðingu þess fyrir samfélagið allt.