Málþing HeimaHafnar

HVAÐ EF ÉG VIL VERA HÉR er yfirskrift málþings sem Nýheimar þekkingarsetur stendur fyrir dagana 23. og 24. september nk. á Höfn í Hornafirði. Umfjöllunarefni málþingsins er ungt fólk, byggðafesta þess og framtíð á landsbyggðinni. 

Á málþinginu verður sjónum beint að mikilvægu hlutverki ungs fólks þegar kemur að þróun og eflingu byggða. Tilgangur málþingsins er að skapa vettvang fyrir umræðu og miðlun þekkingar og reynslu hvað varðar þær áskoranir og tækifæri sem blasa við í tengslum við búsetuval, atvinnu- og byggðaþróun og samfélagsþátttöku ungs fólks á landsbyggðinni. 

Frummælendur verða Eva Mærsk, Lotta Svensson, Gréta Bergrún Jóhannesdóttir, Tonje Bjerken, Eyrún Fríða Árnadóttir og Hugrún Harpa Reynisdóttir. Lotta Svensson hefur um árabil rannsakað stöðu og viðhorf ungs fólks á landsbyggðinni í Svíþjóð og Eva Mærsk hefur undanfarin ár unnið að rannsóknum á sambærilegu sviði í Danmörku. Gréta Bergrún frá Langanesi flytur erindi um áhrif bæjarbrags í samfélögum og Tonje Bjerkan, aðstoðarframkvæmdarstjóri Nordfjordkompanieti í Vestur Noregi, segir frá nýstárlegum aðferðum við að tengja saman ungt fólk, fyrirtæki og sveitarfélög. Þá kynna Hugrún Harpa og Eyrún Fríða HeimaHöfn, þróunarverkefni Nýheima þekkingarseturs og Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Verkefnið miðar að því að styrkja samkeppnishæfni og aðdráttarafl sveitarfélagsins sem framtíðarbúsetukost. Með ólíkum verkþáttum er unnið markvisst að því að stuðla að jákvæðri upplifun og viðhorfi ungmenna til framtíðarinnar í Sveitarfélaginu Hornafirði og efla tengsl þeirra við samfélagið.  

Fulltrúum sveitarfélaga víðsvegar af landinu er boðið til málþingsins og mun dagskrá þess miða að því að skapa tækifæri til samtals og miðlunar þekkingar á milli fólks sem kemur að mótun stoðkerfa í samfélögum og hefur með málefni ungs fólks og landsbyggðarinnar að gera.