Í mars hefjast fjölmörg áhugaverð fjarnámskeið hjá ýmsum stofnunum. Nýheimar þekkingarsetur heldur úti lista sem er uppfærður reglulega með námskeiðum sem finna má HÉR

Fjölmörg námskeið hefjast í mars. Öll námskeið á listanum eru kennd í fjarnámi og eru allt frá því að vera ein klukkustund yfir í að vera kennd yfir lengri tíma. 

Námskeiðin eru fjölbreytt og spanna færni hinna ýmsu greina, persónuleg málefni, áhugamál, tungumálakennslu og fleira. Við hvetjum alla til þess að kynna sér úrvalið en drögum hér fram nokkur námskeið sem verða kennd í mars. 

Skipulagsmál

Farið verður yfir tilgang og markmið skipulags, helstu hugtök, ólíkar gerðir skipulaga og ferlið sjálft. Markmiðið er að auka þekkingu þátttakenda á skipulagsmálum. Námskeiðið á að auka skipulagslæsi þátttakenda og færni til þátttöku í skipulagsmálum.

Námskeiðið er kennt þann 4. mars frá kl 13:00 – 16:00. 

Skráning hér

Sáning sumarblóma, krydds og matjurta.

Auður I. Ottesen garðyrkjufræðingur fer yfir val á fræjum, tímasetning sáningar, lykilatriði til að hafa í huga við ræktun og hvernig skuli hugsa um plönturnar frá sáningu að útplöntun. 

Námskeiðið er haldið þann 9. mars frá kl 17:00-18:30 

Skráning hér

Sigraðu streituna

12. mars á frá kl 18:00 – 20:00 fer Helga Hrönn Óladóttir, mannauðsfræðingur og streituráðgjafi yfir verkefæri og hugtök til greiningar streitu. Þá verður farið yfir ýmsar viðurkenndar aðferðir til þess að vinna að forvörnum, úrlausnum og auka slökun á vinnutíma.

Skráning hér

Canva – flott hönnun á einfaldan hátt

Á námskeiðinu er farið yfir hvernig má nýta Canva til að setja upp kynningarefni, boðskort, auglýsingar og fleira. Farið verður yfir grunnatriðin, sniðmát, einfalda vinnslu mynda og myndskeiða. Þá verður farið yfir notkunarmöguleika gervigreindarinnar í Canva

Námskeiðið verður haldið þann 18. mars frá kl 17:00 – 19:00

Skráning hér