Samráðsfundir með atvinnulífinu

Nejra Mesetovic  gegnir stöðu Byggða- og nýsköpunarfulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar sem er hýst innan Nýheima þekkingarseturs í gegnum samstarfssamning.  

Byggða- og nýsköpunarfulltrúi vinnur að því að efla samstarf við atvinnulífið og styðja við nýsköpun og atvinnuþróun. Fulltrúinn er til staðar  fyrir einstaklinga, frumkvöðla og fyrirtæki sem vilja ráðgjöf, tengingar eða leiðsögn við þróun hugmynda og verkefna. Veitt er aðstoð við gerð viðskiptaáætlana, leit að styrkjum og fjármögnun, auk þess sem unnið er að því að einfalda aðgengi að upplýsingum og tengja aðila við viðeigandi úrræði. Jafnframt felur starfið í sér að greina tækifæri, kortleggja þarfir og safna gögnum um stöðu atvinnulífsins til að styðja við markvissa stefnumótun. Markmiðið er að skapa öflugt og sjálfbært atvinnulíf þar sem hugmyndir fá raunverulegt svigrúm til að verða að verðmætum í Sveitarfélaginu Hornafirði.  

Nú stendur til að halda fjóra samráðsfundi með stærstu atvinnugreinum sveitarfélagsins: landbúnaði, sjávarútvegi, verslun og þjónustu og ferðaþjónustu. Með því að boða til samtals við þessar greinar er verið að stíga skref í átt að markvissari þjónustu. Atvinnulífið býr yfir sérþekkingu á rekstrarumhverfi, áskorunum og tækifærum sem ekki verða greind nema í beinu samtali. Upplýsingar og umræða um innviði, regluverk, samstarf og framtíðarsýn getur gert sveitarfélaginu kleift að forgangsraða aðgerðum á grundvelli raunverulegra þarfa í stað ályktana.  

Með reglulegu samtali má byggja upp þjónustu sem er skilvirkari, aðgengilegri og betur sniðin að ólíkum rekstrarumhverfum. Markmið sveitarfélagsins er að styðja við sjálfbæran vöxt, aukna verðmætasköpun og fjölbreytt atvinnulíf. 

Fundirnir eru staðfundir, en einnig verður boðið upp á streymi. Við hvetjum íbúa til þess að mæta og taka þátt í móta framtíðina í Sveitarfélaginu Hornafirði. 

Staðfundur: 11.mars á Hrollaugsstöðum kl.17:00 
Landbúnaður: https://fb.me/e/4h7T2dlo4 
Streymi: https://teams.microsoft.com/meet/32606132992161?p=peCXFSuV3shI2jp69p 

Staðfundur: 16.mars í Nýheimum kl.17:00 
Sjávarútvegur: https://fb.me/e/8VBSq4akB 
Streymi: https://teams.microsoft.com/meet/37053042196485?p=csOicYiYD5tH0ge08n 

Staðfundur: 17.mars í Nýheimum kl.17:00 
Verslun og þjónusta: https://fb.me/e/cPHDMcp1J 
Streymi: https://teams.microsoft.com/meet/31843628743165?p=zzni2uGakloh5SUlnD 
 
Staðfundur: 18.mars á Hrollaugsstöðum kl.17:00 
Ferðaþjónusta: https://fb.me/e/5w0CD0AYN 
Streymi: https://teams.microsoft.com/meet/37229597422669?p=W1Xn7rsqEUL2BvoIWY