SVAVARSSAFN – sýningarleiðsögn 19. mars – Hanna Dís Whitehead

Date

19 Mar 2026
Expired!

Time

17:00 - 18:00

Location

Svavarssafn

Á döfinni

May 2026
June 2026
August 2026
October 2026
November 2026
January 2027
February 2027
April 2027
June 2027
July 2027
September 2027
October 2027
No event found!
Load More

Verið hjartanlega velkomin á sýningarleiðsögn Hönnu Dísar Whitehead, fimmtudaginn 19. mars klukkan 17:00, um samsýninguna NYTJAR.

SVAVARSSAFN
SÝNINGARLEIÐSÖGN FIMMTUDAGINN 19. MARS kl. 17:00
HANNA DÍS WHITEHEAD

Sýningin Nytjar var opnuð 28. janúar 2026 og er opin til 11. apríl 2026.

(English below)

Hanna Dís Whitehead er hönnuður og myndlistarmaður og einn þriggja sýnenda sýningarinnar Nytjar. Hún starfar sem safnvörður Byggðasafns Austur-Skaftafellssýslu, meðfram eigin sköpunarstarfi. Í verkum sínum tekst hún á við sögu og samtíma af persónulegri og næmri nálgun, þar sem óhefðbundin rannsókn, efnistök og skörp athygli á sjónrænni menningu hverskonar fléttast saman.

NYTJAR er samsýning þeirra Hönnu Dísar Whitehead, Guðlaugar Míu Eyþórsdóttur og Steinunnar Önnudóttur. Sýningin hverfist um safneign Byggðasafns Austur-Skaftafellssýslu, þar sem myndlistarkonurnar þrjár hafa skapað ný listaverk, sem þær byggja á listrænni rannsókn sinni á safnkostinum.
Safneign Byggðasafnsins hefur verið varðveitt í geymslurými safnsins frá árinu 2012 en árið 2021 hófu myndlistarkonurnar þrjár sinn fyrsta leiðangur um safnkostinn með Birni Gísla Arnarsyni, fyrrum Byggðasafnsverði, sem með yfirgripsmikilli þekkingu sinni og sagnagáfu lauk upp leyndardómi safnmunanna.

Verkin á sýningunni eru innblásin af sögum munanna, efnisgerð og/eða hugvitsamlegri framkvæmd þeirra. Á sýningartímabilinu verður gefin út vegleg bók með myndum af munum úr safneign Byggðasafnsins og textafrásögnum Björns Gísla Arnarsonar, auk greina eftir Arnþór Gunnarsson sagnfræðing og Sigrúnu Hönnu Þorgrímsdóttur þjóðfræðing.

http://gudlaugmia.com/html/sfinx.html
https://www.hannawhitehead.com
https://steinunnonnudottir.com

https://mmh.hornafjordur.is/listasafn

Styrktaraðilar sýningarinnar:
Safnaráð
SASS – Samtök íslenskra sveitarfélaga
Myndlistarsjóður
Myndstef

Hönnuður: Helga Dögg Ólafsdóttir

Þakkir fá:
Björn Gísli Arnarson, Byggðasafn Austur-Skaftafellssýslu, Arnþór Gunnarsson, Sigrún Hanna Þorgrímsdóttir, Birta Guðjónsdóttir, Gunnhildur Walsh, Gísli Sverrir Árnason, Kristín Vala Þrastardóttir, Tim Junge & Snæbjörn Brynjarsson.

SVAVARSSAFN ART MUSEUM
HÖFN, HORNAFJÖRÐUR, ICELAND
EXHIBITION GUIDED TOUR

You are warmly invited to Svavarssafn Art Museum on Thursday, March 19th, at 5:00 PM for an exhibition tour led by artist & designer Hanna Dís Whitehead, exploring the museum´s current exhibition NYTJAR.

Hanna Dís Whitehead is a designer and visual artist, and works as the director of the Regional Museum Byggðasafn Austur‑Skaftafellssýslu, alongside her own creative practice. In her work, she addresses history and contemporary issues with a personal and sensitive approach, combining unconventional research, material exploration, and keen attention to visual culture in innovative ways.

NYTJAR is an exhibition by artists Hanna Dís Whitehead, Guðlaug Mía Eyþórsdóttir and Steinunn Önnudóttir.The exhibition revolves around the collection of the Austur-Skaftafellssýsla District Museum, where the three artists have created new artworks based on their exploration of the Museum’s holdings.

The entire collection of the District Museum has been kept in storage since 2012. In 2021, the three artists ventured on their first expedition through the collection with Björn Gísli Arnarson, former Director of the District Museum.
With his extensive knowledge and storytelling ability, Arnarson has unlocked the secrets of one object after another, from the collection. The art works in the exhibition are inspired by the stories of the Museum´s objects, their material composition, and/or their ingenious construction.

Later in the exhibition period, a comprehensive book will be published, featuring photos of objects from the District Museum’s collection and stories by Björn Gísli Arnarson, as well as articles by historian Arnþór Gunnarsson and ethnologist Sigrún Hanna Þorgrímsdóttir.

http://gudlaugmia.com/html/sfinx.html
https://www.hannawhitehead.com
https://steinunnonnudottir.com

https://mmh.hornafjordur.is/listasafn

Support:
The Museum Council of Iceland
SASS – The south Iceland Development fund
Icelandic Art Center
The Icelandic Visual Art Copyright Association

Designer: Helga Dögg Ólafsdóttir

Thanks to:
Björn Gísli Arnarson, Byggðasafn Austur-Skaftafellssýslu, Arnþór Gunnarsson, Sigrún Hanna Þorgrímsdóttir, Birta Guðjónsdóttir, Gunnhildur Walsh, Gísli Sverrir Árnason, Kristín Vala Þrastardóttir, Tim Junge & Snæbjörn Brynjarsson.