Í aprílmánuði hefjast fjölmörg áhugaverð fjarnámskeið hjá ýmsum stofnunum. Nýheimar þekkingarsetur heldur úti lista sem er uppfærður reglulega með námskeiðum sem finna má HÉR.
Öll námskeið á listanum eru kennd í fjarnámi og eru allt frá því að vera ein klukkustund yfir í að vera kennd yfir lengri tíma.
Námskeiðin eru fjölbreytt og spanna færni hinna ýmsu greina, persónuleg málefni, áhugamál, tungumálakennslu og fleira. Við hvetjum alla til þess að kynna sér úrvalið en drögum hér fram nokkur námskeið sem verða kennd í mars.
Loftslagsbreytingar og öfgaveðurfar
Á námskeiðinu verður fjallað um loftslagsbreytingar sem eru ein alvarlegasta áskorun samtímans, þvert á alþjóðasamfélagið. Breytingar á loftslagi hafa áhrif á allt lífhvolfið, og hvorki mörk landamæra né menningar skipta máli þegar kemur að afleiðingum loftslagsbreytinga.
Ein af þeim afleiðingum sem oft er nefnd í sviðsmyndum um áhrif hækkunar hitastigs í heiminum eru auknar öfgar í veðurfari, en þær getur verið erfitt að meta frá einu veðri til annars. Á þessu námskeiði er farið yfir grunnhugtök í loftslagsfræði og veðuröfgum og rætt um mismunandi veðuröfgar síðustu ára, allt frá hitabylgjum, til fellibylja, flóða og djúpra lægða.
Námskeiðið er kennt þann 8. apríl frá kl 19:00 – 22:00 á ZOOM.
Lifandi mold og lífræn ræktun
Auður I. Ottesen garðyrkjufræðingur kennir hvernig byggja megi upp heilbrigt vistkerfi með lífrænum aðferðum. Farið er yfir mikilvægi örvera, skipulag í matjurtagerðinum, val á lífrænum áburði og fleiri gagnleg atriði við lífræna ræktun.
Námskeiðið er haldið þann 28. apríl frá kl 17:00-18:30
Að gefa út bók – frá hugmynd til lesenda
Yfirgripsmikið námskeið sem fjallar um alla helstu þætti sem þarf að hafa í huga í útgáfuferli bókar, allt frá hönnun og umbroti til dreifingar og sölu. Farið verður yfir ólíkar fjármögnunarleiðir, höfundarréttargreiðslur, ólíkar leiðir til dreifingar, markaðssetningar og sölu.
Á námskeiðinu er fjallað um m.a.
Fjármögnun og styrki.
Ritstjórn og prófarkalestur.
Hönnun og uppsetningu.
Tilboðsgerð og prentun.
Dreifingu og sölu.
Innifalið í námskeiðsgjaldi er 1 klst löng einkaráðgjöf með kennara um verkefni hvers og eins.
Námskeiðið verður haldið þann 14. apríl frá kl 18:00 – 21:00
Sparnaður og fjárfestingar
Mikilvægt er að huga vel að sparnaði, jafnt fyrir skammtímaútgjöldum sem og fjárfestingum í framtíð. Á námskeiðinu verður rætt um hvernig velja megi heppilegasta sparnaðar- eða fjárfestingarkostinn hverju sinni. Námskeiðið hentar fólki á öllum aldri sem vill ná betri tökum á sparnaði sínum og fjárfestingum.
Námskeiðið verður haldið þann 16. apríl frá kl 17:00 – 19:00