Kaffistofa - fundaherbergi Nýheima
Fundaraðstaða
Kaffistofa er fundarherbergi á vesturgangi í Nýheimum á 1. hæð. Herbergið rúmar allt að 12 manns í sæti og þar er skjávarpi til staðar fyrir kynningar, fundi og vinnulotur.
Staða herbergisins á einum stað
Hér má sjá hvort Kaffistofa sé laus eða bókuð, opna dagatalið og bæta því við í síma eða tölvu. Síðan er ætluð þeim sem þurfa skýra og einfalda yfirsýn yfir stöðu herbergisins.
Opna dagatalið í vafra – smelltu til að sjá stöðu herbergis.
Hlaða niður dagatali fyrir Outlook eða annað dagatalsforrit
Til að tryggja að Kaffistofa nýtist öllum sem best, eru eftirfarandi reglur í gildi:
Kaffistofa er blokkbókuð kl. 10:00–10:30 og 12:00–12:30 vegna kaffitíma og hádegis.
Heimilt er að bóka herbergið á þessum tíma, en þá þarf að láta alla á ganginum vita fyrirfram.
Virðing fyrir fundum
Það er mikilvægt að hafa í huga að þegar fundur er í gangi á ekki að ganga inn og út úr herberginu. Virða næði og vinnufrið þeirra sem eru inni.
Ef þörf er á kaffi eða að hita mat á meðan fundur stendur yfir er hægt að nýta aðstöðuna frammi á Nýtorgi, þar sem bæði er kaffi og örbylgjuofn til staðar. Þetta á sérstaklega við þegar ekki er hægt að bíða þar til herbergið losnar.
Að lokum er mikilvægt að ganga vel um aðstöðuna, skilja herbergið eftir hreint og tilbúið fyrir næsta notanda og fara vel með þann búnað sem er til staðar.