13. ársfundur Nýheima þekkingarseturs
13. ársfundur Nýheima þekkingarseturs var haldinn síðastliðinn þriðjudag, 24. mars. Kristín Vala Þrastardóttir fulltrúi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar í stjórn setursins var fundarstjóri og flutti hún jafnframt skýrslu stjórnar. Hugrún Harpa, forstöðumaður setursins, sagði frá starfsemi ársins og helstu verkefnum auk þess sem hún kynnti ársreikning 2025. Breytingar urðu á embættum stjórnar á fundinum en þau eru svo skipuð til ársfundar 2027: Þórgunnur Torfadóttir formaður, Ingunn Jónsdóttir varaformaður, Sindri Örn Elvarsson gjaldkeri og Kristín Vala Þrastardóttir ritari.
Ársskýrslu setursins má finna hér til hliðað með því að smella á myndina.
Að loknum hefðbundnum ársfundarstörfum voru flutt fjögur erindi frá aðildarstofnunum setursins. Hanna Dís Whitehead byggðasafnsvörður sagði frá uppsetningu sýningar um Kvísker í Gömlubúð. Charli Brzeski starfsmaður Náttúruverndarstofnunar sagði frá verkefninu Zero-emission UNESCO waterways. Helga Kristín Sæbjörnsdóttir sagði frá starfsemi Háskólafélags Suðurlands og Guðjón Ragnar Jónasson sagði frá vinnu Framhaldsskólans í Austur – Skaftafellssýslu að eflingu iðnnáms við skólann.