HeimaHöfn kynnt sem fyrirmynd á samráðsfundi í Svíþjóð
Nýheimar þekkingarsetur hefur undanfarin ár átt í öflugu samstarfi við Hälsinglands Utbildningsförbund í Svíþjóð og Nordfjordkompaniet í Noregi. Stofnanirnar þrjár standa sameiginlega að verkefninu Future in Focus: Empowering Youth in Rural Communities, sem styrkt er af Nordplus.
Liður í verkefninu var samráðsfundur sem haldinn var 19. maí í Söderhamn í Svíþjóð. Tilgangur fundarins var að skapa samtal um stöðu ungs fólks á landsbyggðinni og miðla reynslu af verkefnum sem miða að því að styrkja tengsl ungmenna við heimabyggð, atvinnulíf og samfélag. Fjölbreyttur hópur þátttakenda sótti fundinn, þar á meðal sveitarstjórnarfólk, fulltrúar félagasamtaka og fagfólk úr ýmsum greinum ungmennastarfs. Hugrún Harpa og Nejra tóku þátt fyrir hönd Nýheima þekkingarseturs.
Á fundinum kynntu Nýheimar þekkingarsetur og Nordfjordkompaniet verkefni sín og aðferðir á sviði byggðafestu ungs fólks. Nordfjordkompaniet greindi frá þeirri aðferðafræði sem þróuð hefur verið í Nordfjord í Noregi, en HeimaHöfn á sér fyrirmynd í því verkefni. Kynning Nýheima þekkingarseturs fjallaði um hvernig sú nálgun hefur verið aðlöguð að aðstæðum í Sveitarfélaginu Hornafirði og þróuð áfram í gegnum verkefnið HeimaHöfn.
HeimaHöfn er þróunarverkefni sem miðar að því að styrkja samkeppnishæfni og aðdráttarafl Hornafjarðar með ungt fólk í forgrunni. Verkefnið byggir á samstarfi við ungt fólk, skóla, atvinnulíf, félagasamtök og aðra hagaðila á svæðinu. Með því að styrkja tengsl ungmenna við heimabyggðina og auka sýnileika tækifæra er leitast við að efla byggðafestu og styðja ungt fólk til að taka upplýstar ákvarðanir um framtíð sína.
Samráðsfundurinn í Söderhamn var ekki síst mikilvægur vettvangur til að kynna HeimaHöfn sem mögulega fyrirmynd fyrir önnur landsbyggðarsamfélög. Fulltrúar frá Íslandi og Noregi miðluðu reynslu sinni til sænskra þátttakenda með það að markmiði að sýna hvernig hægt er að þróa markviss verkefni sem tengja ungt fólk betur við samfélag sitt og framtíðarmöguleika í heimabyggð. Á fundinum kom fram áhugi á því að skoða hvernig sambærilegar aðferðir gætu nýst í sænsku samhengi. Rætt var hvernig sveitarfélög, menntastofnanir, atvinnulíf og félagasamtök geta unnið saman að því að skapa betri forsendur fyrir ungt fólk á landsbyggðinni.
Fundurinn var mikilvægur liður í alþjóðlegu samstarfi verkefnisins og gaf tækifæri til að miðla reynslu HeimaHafnar út fyrir landsteinana. Um leið styrkti hann samtal samstarfsaðila um hvernig hægt sé að þróa verkefni sem taka mið af aðstæðum hvers samfélags, en byggja á því sameiginlega markmiði að styðja ungt fólk til að sjá framtíðarmöguleika í landsbyggðarsamfélögum.
