Tímabundin vinnuaðstaða
Móttaka gesta
Nýheimar þekkingarsetur býður frumkvöðlum, rannsakendum og öðrum gestum tímabundna vinnuaðstöðu. Gestum bjóðast afnot af skrifstofurými sem er búið skrifborðum með skjá, lyklaborði og mús. Auk þess hafa notendur aðgang að kaffistofu og fundaraðstöðu.
Þekkingarsetrið getur lánað gestum tölvu sé þess óskað. Fyrir frekari upplýsingar og bókanir má senda tölvupóst á nyheimar@nyheimar.is