Í september voru tveir fundnir haldnir í Sveitarfélaginu Hornafirði til kynningar á Sóknaráætlun Suðurlands og Uppbyggingasjóði. Sóknaráætlun Suðurlands er hjartað í byggðaþróun landshlutans. Hún er sértæk stefna fyrir Suðurland sem dregur upp skýra framtíðarsýn og skilgreinir þau markmið og aðgerðir sem munu geta elft atvinnulíf, menningu og samfélag á svæðinu. Uppbyggingarsjóður er nýttur sem framkvæmdafé til þess að styðja við Sóknaráætlunina, þar sem almenningi gefst tækifæri á að fá styrkúthlutun.
Fundirnir voru haldnir á Höfn og í Freysnesi.
Nú hefur verið lokað fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóðinn en niðurstöður fagnefnda munu liggja fyrir í byrjun desember. Við hlökkum til að sjá umsótt verkefni í heimabyggð verða að veruleika.
