Að tengja störf tengdum óáþreifanlegum menningararfi við EQF og ESCO:
Lokaniðurstöður úr alþjóðlegri greiningu.
Óáþreifanlegur menningararfur er kunnátta, venja, framsetning eða færni sem UNESCO telur til sem menningararf staðar; Það tekur til óefnislegra hugverka svo sem þjóðsagna, siða, hefða, trú, þekkingu og tungumáls.
NICHE verkefnið (Nurturing Intangible Cultural Heritage for Entrepreneurship eða efling frumkvöðlastarfs á sviði óáþreifanlegs menningararfs) mun hanna nýstárlegt kennsluefni fyrir þann vanmetna hóp fagfólks (og tilvonandi starfsfólks) sem starfa á sviði ICH (óáþreifanlegs menningararfs) og kynna leiðir til frumkvöðlastarfa innan sviðsins, auka samkeppnishæfni og viðhalda vexti þess. Kortlagning á þessari faglegu starfsgrein kemur frá ítarlegri greiningu samstarfaðila, sem framkvæmd var allt árið 2021 og er loksins tiltæk á vefslóð verkefnisins.
Skortur á klæðskerasniðinni þjálfun í þessari starfsgrein er undirstrikuð í skýrslu, sem Evrópusambandið gaf út í júní 2019 og ber heitið “Fostering Cooperation in the EU on Skills, Training & Knowledge Transfer in Cultural Heritage Professions”. Skýrslan afhjúpar nauðsynlega þörf þess að íhuga hvernig best er að auka, kynna og vernda, hefðbundið, faglegt og sérhæft fagfólk eða sérfræðinga í menningararfleifð innan Evrópusambandsins.
Í gegnum alla rannsóknina, beindu samstarfsaðilar sjónum sínum að:
- Kortlagningu og kennsl borin á þau störf, er tilheyra innan sviðs óáþreifanlegs menningararfs
- Þyrping fagfólks innan ICH greinarinnar
- Hæfniviðmið ICH fagfólks innan ESCO
- Almenn hæfni og færni ICH stjórnenda
- Röðun faglegrar hæfni ICH innan skala EQF, frá stigum 3- 5
Niðurstöður greiningarinnar eru eftirfarandi:
- Mjög nýstárleg, þar sem skoðað er kunnáttu í starfi, hæfniviðmið og færni innan starfandi greinar sem hefur ekki ennþá verið skilgreind með tilliti til hlutverks og hæfni. NICHE er beint að fagfólki í forystuhlutverkum, tímabundnu eða varanlegu og starfsmönnum á margvíslegum stigum innan ICH.
- Áhrifaríkt, þar sem niðurstöður hafa mikil áhrif á framkvæmd og skipulag þjálfunnar og þróunar nýstárlegs, gagnlegs og viðeigandi þjálfunnar fyrir markhópa (fyrst og fremst ICH stjórnendur). Þar að auki munu þessi gögn veita mikilvægar upplýsingar um efni, skipulag, afhendingarleiðir o.s.fr., byggt á nákvæmum þörfum markhópsins eins og fram kemur hjá ,,óáþreifanlega menningararfs vistkerfinu“ sem samanstendur af sjálfseignastofnunum, félagssamtökum, markaðsstofum, hinu opinbera, starfsmenntunarsjóðum og aðilum innan fullorðinsfræðslu o.s.fr.
- Yfirfæranlegt, þar sem tæknin og aðferðarfræðin sem notuð var til að framkvæma rannsóknina getur verið notuð á meðan og eftir að verkefninu líkur af hagsmunaaðilum (tilgreindir hér að ofan) og fyrir samstarfsaðila sem vilja endurgera verkefni eins og NICHE.
Ítarlegri upplýsingar um niðurstöður greiningarinnar á Íslandi má finna hér.
Allar niðurstöður NICHE verkefnisins eru tiltækar á opnu formi á heimasíðu verkefnisins: www.nicheproject.eu