Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Innan Menningarmiðstöðvarinnar eru sex safneiningar, byggða-, sjóminja-, náttúrugripa-, lista-, bóka- og héraðsskjalasafn ásamt rannsóknarsviði sem starfar þvert á einingarnar.
Byggða-, sjóminja- og náttúrugripasafn. Safninu er ætlað að safna minjum sem lýsa mannlífi héraðsins, það er heimilishaldi, félagslífi, samgöngum og atvinnuháttum, jafnt til sjávar og sveita með áherslu á Skaftfellskt efni sem einkennt hafa þetta byggðarlag eða gert aðstæður þess frábrugðnar aðstæðum annarra byggðarlaga.
Listasafn Svavars Guðnasonar safnar listaverkum með sérstakri áherslu á Austur-Skaftfellska list. Kjarni safneignar Listasafnsins samanstendur af verkum Svavars Guðnasonar og fleiri hornfirskra málara og á safnið nú yfir 500 verk, sem bæði eru sýnd í sal listasafnsins auk þess sem verk hafa verið lánuð til annarra stofnana sveitarfélagsins.
Bókasafn hefur það hlutverk að veita upplýsingar, auka þekkingu og vera til afþreyingar fyrir alla íbúa héraðsins. Það er einnig skólabókasafn Framhaldskólans í Austur-Skaftafellssýslu og er í samvinnu við Grunnskóla Hornafjarðar. Á Bókasafninu er hægt að lesa dagblöðin og ýmis konar tímarit. Barnadeild safnsins er notaleg og vinsæl hjá yngri kynslóðinni, þar er til dæmis ávallt hægt að lita, perla eða föndra og svo auðvitað grípa góða bók. Bókakostur safnsins er mjög fjölbreyttur og telur um 34 þúsund bindi.
Héraðsskjalasafn Austur-Skaftafellssýslu: Þjónusta við almenning felst m.a. í því að svara fyrirspurnum úr skjölum og aðstoða gesti safnsins. Enn fremur tekur safnið á móti einkaskjalasöfnum frá einstaklingum, félögum og fyrirtækjum í héraðinu. Gestir og gangandi geta komið við á Héraðsskjalasafninu, fengið aðstoð hjá héraðsskjalaverði við að finna skjöl og þau má ljósrita fyrir frekari rannsóknir en skjöl eru ekki til útláns.
Menningarmiðstöðin leggur áherslu á miðlun, skráningu og fræðslu menningararfs Hornafjarðar. Hlutverk Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar er að halda uppi öflugu menningarlífi í sveitarfélaginu, styðja við frjáls félagasamtök sem vinna að menningarmálum og hlúa að öflugu og fjölbreyttu menningarstarfi sem til staðar er í sveitarfélaginu. Önnur meginmarkmið Menningarmiðstöðvar Hornafjarðarsafna er að hlúa að því öfluga og fjölbreytta menningarstarfi sem til staðar er í sveitarfélaginu og viðurkenna menningarmál sem eitt af meginverkefnum sveitarfélagsins. Efla vitund fólks um sérkenni og menningararf héraðsins og halda þeim sérkennum við með fræðslu, kynningu og beinum aðgerðum.