Háskólafélag Suðurlands

Háskólafélag Suðurlands er félag í eigu sveitarfélaganna á Suðurlandi. Markmið félagsins er að auka búsetugæði í héraðinu með uppbyggingu þekkingarsamfélags. Leitast er við að vinna að þessum markmiðum með þrennum hætti
– Bætt aðgengi að menntun, einkum á háskólastigi og í samvinnu við atvinnulífið
– Efling rannsókna- og vísindastarfs í héraðinu 
– Einstök átaksverkefni byggð á styrkleikum svæða

Þá má nefna að síðan í mars 2016 sinnir Háskólafélagið ráðgjafarþjónustu fyrir Samtök sunnlenskra sveitarfélaga varðandi atvinnuþróun, nýsköpun og mennta- og menningarmál.

Háskólafélagið var stofnað í desember 2007 en í byrjun árs 2014 gerðist Sveitarfélagið Hornafjörður aðili að félaginu og hóf félagið þá að sinna háskólanemum á svæðinu en áður hafði félagið tekið þátt í öðrum samstarfsverkefnum á svæðinu, m.a. um fræðandi ferðaþjónustu í samvinnu við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Höfn. Haustið 2018 dró Háskólafélagið sig frá þjónustu við háskólanema á svæðinu og tók Nýheimar þekkingarsetur við boltanum og sér nú um alla þjónustu við háskólanema, svo sem fjarprófaþjónustu og námsaðstöðu í Nýheimum.

Á síðustu árum hefur Háskólafélagið lagt aukna áhersla á þróun nýs námsframboðs í samvinnu við atvinnulífið á Suðurlandi. Fyrst var þar um að ræða nám varðandi nýsköpun og stjórnun í matvælafyrirtækjum (Matvælabrúin) en síðan tók við sambærilegt nám fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu (Ferðamálabrúin). Í báðum þessum tilvikum hafa nemendur í Sveitarfélaginu Hornfirði tekið þátt í þessu nýbreytnistarfi.

Háskólafélag Suðurlands hefur aðstöðu í Fjölheimum, Tryggvagötu 13, Selfossi.

www.hfsu.is
560 2050
hfsu@hfsu.is
Fjölheimar, Tryggvagata 13
800 Selfoss