Fræðsluefni í NICHE verkefninu
Markmið NICHE verkefnisins (Nurturing Intangible Cultural Heritage for Entrepreneurship) er að efla frumkvöðlastarf teng óáþreifanlegum menningararfi. Samstarfsaðilarnir í verkefninu hafa þróað fræðsluefni sem er notendavænt og nemendamiðað. Það er haft stutt og laggott, í átt að örþjálfun. Allt efnið er nú fáanlegt á íslensku auk ensku, ítölsku, spænsku, grísku og sænsku. Það er ókeypis og aðgengilegt fyrir alla á vef verkefnisins.
Námskeiðin, dæmisögur og annað fræðsluefni: https://www.nicheproject.eu/trainings_is.php?lang=IS
- Samskipti og samstarf með stafrænum miðlum
- Miðlun þekkingar og jafningjanám
- Lykilatriði við verndun óáþreifanlegs menningararfs
- Þróun sýnar
- Samskipti og þekkingarmiðlun
- Framkvæmd
- Fjármálafræðsla og stjórnendalæsi
- Að vinna með óáþreifanlegan menningararf – gildi og þróun eigin hugmynda
- Stafrænt læsi og gagnavernd fyrir fagaðila í óáþreifanlegum menningararfi
- Entrecomp ramminn fyrir óáþreifanlegan menningararf
NICHE verkefnið er unnið með styrk frá Erasmus+, samstarfsáætlun ESB. Þetta er tveggja ára verkefni og hófst í nóvember 2020. Þátttakendur í verkefninu eru níu talsins og koma frá sjö löndum Evrópu; Íslandi, Belgíu, Grikklandi, Írlandi, Ítalíu, Spáni og Svíþjóð.