13 styrkir til Hornfirðinga
Haustúthlutun úr Uppbyggingasjóði Suðurlands var í dag, 6. nóvember. Mörg áhugaverð verkefni sóttu um styrk að þessu sinni og áttu Hornfirðingar 18 umsóknir af þeim 86 sem bárust í sjóðinn eða um 21%. Uppbyggingasjóður Suðurlands veitir verkefnastyrki í tveimur flokkum, atvinnuþróunar- og nýsköpunar og menningar. Í heildina bárust 24 umsóknir í flokki atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna, fjórar þeirra frá Hornafirði, og 64 í flokki menningarverkefna og áttu Hornfirðingar þar 14 umsóknir.
Að þessu sinni var 40.1 milljón króna úthlutað á Suðurlandi öllu, 17.1 m.kr. til 12 verkefna í flokki atvinnuþróunar og nýsköpunar og 23 m.kr. til 41 verkefna í flokki menningar. Samtals eru veittir styrkir til 53 verkefna. 13 Hornfirsk verkefni hlutu styrki í þessari úthlutun, 11 menningarverkefni og tvö í flokki atvinnuþróunar- og nýsköpunar. Samtals hlutu verkefnin þrettán 8.750.000 krónur í styrk eða um 22% af úthlutuðu fjármagni.
Það er til marks um mikla grósku í Hornfirðingum sá fjöldi umsókna og styrkja sem berst á svæðið í þessari úthlutun, sem og í fyrri úthlutunum. Menningarlíf stendur vel og 27% styrkja Uppbyggingasjóðs Suðurlands í menningarverkefni koma nú til Hornfirðinga. Í flokki atvinnuþróunar og nýsköpunar áttu Hornfirðingar 16% styrkja.
Nýheimar þekkingarsetur sinnir ráðgjöf og handleiðslu um sjóðinn og eru allir velkomnir á skrifstofur okkar í Nýheimum til að ræða möguleg tækifæri og umsóknir. Næsti umsóknarfrestur í sjóðinn er í mars næstkomandi en hér má nálgast úthlutunarreglur sjóðsins: Úthlutunarreglur og mat á umsóknum – SASS
Hér má lesa meira um öll þau fjölbreyttu verkefni sem hlutu styrk úr haustúthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurlands 2024.