Evrópska samstarfsverkefnið SPECIAL snýr að því að nýta mjúka og almenna hæfni til að auka ráðningarhæfi, styrkja starfsferil og styrkja sjálfstraust NEETs (ungt fólk sem er ekki í vinnu, námi eða þjálfun).
Við framkvæmd SPECIAL kortlögðu samstarfsaðilar þær þarfir og áskoranir sem koma í veg fyrir að NEET (ungt fólk án atvinnu og menntunar) geti sigrast á einangrun/jaðarsetningu í heimi menntunar og/eða vinnumarkaðar. Um fjölþjóðlegt samstarf er að ræða og eru þátttökulöndin Ísland, Spánn, Ítalía, Rúmenía og Svíþjóð en einnig var lögð fram almenn kortlagning um meðaltal í Evrópu allri.
Svo virðist sem helstu áskoranir ungs fólks snúi að atvinnutækifærum og áreiðanlegum störfum á vinnumarkaði til lengri tíma. Þessi þróun er enn áþreifanlegri innan dreifbýlis, afskekktra og einangraðra svæða, þar sem skortur er á þeim tækifærum sem þéttbýlisstaðir og miðstýrð svæði geta boðið.
Samstarfsaðilarnir vinna nú að því að því að þróa þjálfunarnámskrá sem byggir á greiningu þeirra á færnibili NEETs. Námsefni og önnur gögn verða í samræmi við þjálfunarsvið og tengd undirhæfni tveggja evrópskra hæfniramma; EntreComp sem snýr að frumkvöðlafærni og LifeComp sem snýr að persónulegri og félagslegri færni.
Miðað við okkar greiningu virðast nokkur áhugasvið samræmast færnibilinu sem um ræðir:
Tækifæri til að koma auga á | Þekkja og grípa tækifæri til að skapa verðmæti með því að kanna félagslegt, menningarlegt og efnahagslegt landslag Greina þarfir og áskoranir sem þarf að mætaKoma á nýjum tengingum og koma saman dreifðum þáttum til að skapa tækifæri og þannig verðmæti |
Mat á hugmynd | Þekkja hvaða gildi eru í félagslegu, menningarlegu og efnahagslegu tillitiGreina möguleikana sem hugmynd hefur til að skapa verðmæti og finna viðeigandi leiðir til að nýta sem best |
Sjálfsvitund og sjálfstraust | Greina þarfir, vonir og óskir til skamms, meðallangs og langs tímaÞekkja og meta styrkleika og veikleika þína og hópsins þínsTrú á eigin getu til að hafa áhrif á atburðarásina, þrátt fyrir óvissu, áföll og tímabundin mistök |
Hvatning og þrautseigja | Að vera staðfastur í breyta hugmyndum í framkvæmd og ná árangriÞolinmæði og staðfesta í að reyna að ná langtímamarkmiðum, einstaklingar eða hóparVera þrautseig undir álagi, mótlæti og mistök |
Að taka frumkvæði | Setja af stað ferli sem skapa verðmætiTaka áskorunumStarfa og vinna sjálfstætt að því að ná markmiðum, halda sig við fyrirætlanir og framkvæma fyrirhuguð verkefni |
Áætlanagerð og stjórnun | Setja sér langtíma-, meðal- og skammtímamarkmiðSkilgreina forgangsröðun og aðgerðaáætlanirLaga sig að ófyrirséðum breytingum |
Vinna með öðrum | Vinna saman og vinna með öðrum að því að þróa hugmyndir og koma þeim í verkMynda tengslanetLeysa flækjur og horfast í augu við samkeppni á jákvæðan hátt þegar þörf krefur |
Að læra með reynslu | Nota frumkvæði til verðmætasköpunar sem námstækifæriLæra með öðrum, þar á meðal jafnöldrum og leiðbeinendumVelta fyrir sér og að læra af bæði árangri og mistökum (þínum eigin og annarra) |
Efnið verður aðgengilegt á vefsíðu verkefnisins: https://projectspecial.eu/