Áframhaldandi þróun og miðlun HeimaHafnar
HeimaHöfn hlaut nýverið styrk frá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga sem áhersluverkefni í landshlutanum. Styrkurinn verður nýttur til áframhaldandi þróunar á aðferðum og verkþáttum HeimaHafnar og til miðlunar verkefnisins meðal annarra sveitarfélaga á Suðurlandi.
Sérstök áhersla er á frekari þróun verkþátta sem ná til yngri nemenda í grunnskóla. Unnið verður að þróun og prófun verkþátta fyrir nemendur í 7. – 9. bekk Grunnskóla Hornafjarðar. Fram til þessa hefur verkefnið að mestu verið unnið með nemendum í 10. bekk grunnskólans og nemendum Framhaldsskólans í Austur – Skaftafellssýslu.
Miðlunarhluti áhersluverkefnisins felst í markvissri miðlun meðal sunnlenskra sveitarfélaga á þeirri þekkingu og reynslu sem hefur áunnist við framkvæmd HeimaHafnar í Sveitarfélaginu Hornafirði. Leitast verður við að koma á öflugu samtali milli sveitarfélaga um vænlegar leiðir til þekkingaryfirfærslu og miðlunar innan landshlutans.
Báðir liðir áhersluverkefnisins munu efla HeimaHöfn og skapa ný tækifæri til framþróunar, sem nýst geta öllu Suðurlandi.