Ársfundur Samtaka þekkingarsetra í Eyjum

Árlegur fundur Samtaka þekkingarsetra var að þessu sinni haldinn í Vestmannaeyjum þann 26. ágúst. Til fundarins voru mættir fulltrúar allra þekkingarsetra sem eiga aðild að samtökunum. Auk Nýheima þekkingarseturs eru það Þekkingarsetur Vestmannaeyja, Háskólafélag Suðurlands, Textílmiðstöð Íslands, Þekkingarsetur Suðurnesja, Austurbrú og Þekkingarnet Þingeyinga.

Fundurinn hófst á skoðunarferð um húsakynni Þekkingarseturs Vestmannaeyja og kynningu á starfsemi setursins og helstu verkefnum. Að henni lokinni hófst hefðbundin dagskrá aðalfundar þar sem farið var yfir starf síðasta árs og helstu verkum samtakanna gerð skil. Fræðandi erindi eru nú orðin fastur liður í dagskrá aðalfundar og að þessu sinni var það Grettir Jóhannesson sem flutti áhugavert erindi sem bar yfirskriftina Er framtíðin mætt?. Umfjöllunarefni hans var gervigreind og hinir fjölbreyttu möguleikar sem felast í henni.

Að loknum aðalfundarstörfum fjölluðu fulltrúar setranna um sameiginlega stefnumótunarvinnu setranna sem verður framhaldið á sérstökum vinnufundi síðar í haust. Deginum lauk svo með skoðunarferðum og kynningu á starfsemi fyrirtækis í heimabyggð í boði gestgjafans.

Eins og ávallt var ánægjulegt og gagnlegt að eiga samtal og njóta samveru með samstarfsfólki okkar hjá setrunum. Þekkingarsetri Vestmannaeyja eru færðar bestu þakkir fyrir móttökurnar.