Future in Focus: Norrænt samstarfsverkefni
Future in Focus: Empowering Youth in Rural Communities er norrænt samstarfsverkefni sem Nýheimar þekkingarsetur tekur þátt í. Verkefnið er styrkt af Nordplus Horizontal og unnið í samstarfi við Nordfjordkompaniet í Noregi og Hälsinglands Utbildningsförbund í Svíþjóð.
Verkefnið hófst haustið 2025 með upphafsfundi þar sem lagður var grunnur að samstarfinu. Markmið verkefnisins er að greina þær áskoranir sem ungt fólk stendur frammi fyrir þegar kemur að búsetuvali og er sjónum sérstaklega beint að dreifðum byggðum. Verkefnið leitast við að auka skilning á helstu áhrifaþáttum búsetuvals og kanna hvernig megi styðja við stöðu ungs fólks og sýn þeirra á framtíðina í heimabyggð.
Vinna síðustu mánaða
Undanfarna mánuði hafa samstarfsaðilar unnið að undirbúningi rannsóknarvinnu og þróun spurninga sem lagðar voru fyrir nemendur í 10. bekk á Höfn, í Söderhamn í Svíþjóð og í Nordfjord í Noregi.
Spurningarnar sneru að sýn ungs fólks á framtíðina í sinni heimabyggð, hvort þau sjái fyrir sér að vera áfram á staðnum eða flytja burt. Einnig var spurt um hvaða þættir hafi áhrif á þær ákvarðanir unga fólksins.
Að lokinni gagnaöflun voru niðurstöður greindar og bornar saman milli landa. Í framhaldinu voru þær kynntar fyrir ungmennunum sjálfum og unnið áfram með þær í hópavinnu. Einnig voru tekin viðtöl við einstaklinga sem verða hluti af myndbandsefni sem unnið er innan verkefnisins og verður hluti af lokaafurðum þess.
Næstu skref
Næsti formlegi samstarfsfundur verður haldinn í maí 2026 í Svíþjóð. Þar munu samstarfsaðilar kynna fyrstu niðurstöður rannsóknarvinnu og halda áfram þróun fræðsluefnis og verkefnisins í heild.
Verkefnið stendur til ársins 2027 og verða helstu niðurstöður birtar í heildarskýrslu, ásamt stuttum samantektum á íslensku, norsku og sænsku.