Nýheimar þekkingarsetur leiðir nú tilraunaverkefni undir hatti félagsins Gefum íslensku séns, sem er stutt af Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga.

Langar þig að aðstoða nýja íbúa sveitarfélagsins við menningarlæsi og fyrstu skref í íslenskunámi? Býrð þú á Höfn, í Suðursveit, Öræfum, Lóni, Nesjum eða á Mýrum og vilt taka á móti nýjum íbúum í kvöldmat í eitt skipti?

Heimafólki í Sveitarfélaginu Hornafirði er boðin eingreiðsla (40.000 kr) til þess að kaupa inn í kvöldmáltíð og bjóða nýjum íbúum sveitarfélagsins af erlendum uppruna heim til sín í mat.

Nánar upplýsingar og skráning hér: https://forms.gle/svKm4b2AFghWCAJF9