Háskóli Íslands býður upp á ólíkar námsleiðir í íslensku sem annað tungumál, bæði í fjarkennslu og staðkennslu. Í apríl verða haldnir rafrænir kynningarfundir um námsleiðirnar og öllum er frjálst að skrá sig til þátttöku.
Haldnir verða tíu kynningarfundir og getur þú skráð þig á einn eða fleiri þeirra. Allir verða þeir haldnir í gegnum Teams-fjarfundarbúnað (á internetinu) nema tveir þeirra. Fundir þeir sem eru á vinnutíma taka um 30–35 mínútur með spurningum en þeir sem eru utan hefðbundins vinnutíma taka um 45 mínútur með spurningum. Kynningarnar verða á íslensku og ensku. Markhópurinn er auðvitað þeir sem vilja læra íslensku en einnig vinnuveitendur sem vilja ef til vill kynna sér hvernig styrkja megi máltileinkun starfsfólks síns og kynna sér námsleiðirnar með það að markmiði að kynna þær fyrir starfsfólki sínu.
Hér fyrir neðan má sjá hlekki á námsleiðirnar sem eru í boði og eins má sjá tímasetningar og skráningu á kynningarfundina. Við hvetjum alla til þess að kynna sér framboðið og deila með öðrum.
The University of Iceland offers different study programs in Icelandic as a second language, both in distance learning and on-site learning. In April, electronic introductory meetings about the study programs will be held and everyone is free to register to participate.
Below you can see links to the study programs that are available, as well as schedules and registration for the introductory meetings. We encourage everyone to familiarize themselves with the programs and share with others.
Námsleiðir í íslensku sem öðru máli
BA-nám í íslensku sem öðru máli | Háskóli Íslands [English version]
Íslenskustoð – Grunndiplóma | Háskóli Íslands [English version]
Íslenska sem annað mál, hagnýtt nám – Grunndiplóma | Háskóli Íslands [English version]
Inntökupróf í Íslensku sem annað mál, hagnýtt nám | Háskóli Íslands [English version]
Inntökupróf í BA-nám í íslensku sem öðru máli og Íslenskustoð | Háskóli Íslands [English version]
*Umsóknarfrestur er til 20. maí
Rafrænir kynningarfundir
27. apríl, klukkan 12:30 eða 17:00
28. apríl, klukkan 10:00 eða 17:00
29. apríl, klukkan 10:00 eða 12:30
30. apríl, klukkan 17:00, einnig staðkynning í Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði
4. maí, klukkan 10:00 eða 12:30
4. maí, klukkan 17:00, staðkynning í Háskólanum á Akureyri, stofa M 203
Hér er skráningareyðublað sem við biðjum þig vinsamlega um að nota hafir þú hug á að sækja einn fundanna.
Hér er hlekkur á fundina á Teams. Auðkenni fundar: 366 630 710 680 50, Lykilorð: J33gD7LB (ef þarf)