Á morgun, 25. nóvember, hefst prófatímabilið í Nýheimum þekkingarsetri og það stendur til 14. desember. Að þessu sinni þreyta 20 nemendur 47 próf hjá okkur, bæði frá Háskólanum á Akureyri og Háskóla Íslands.

Allir háskólanemar eru velkomnir að nýta sér aðstöðuna og prófaþjónustuna í Nýheimum, sem stendur til boða allt árið. Markmiðið er að fólk á Hornafirði eigi greiðari leið að háskólanámi, óháð því hvar það býr. Sumir stunda fjarnám héðan að heiman, en aðrir nýta þjónustuna til að komast fyrr heim í jólafrí.

Prófaþjónustan er gjaldfrjáls. Það er mikilvægt skref í átt að jöfnu aðgengi að menntun.

Fjarpróf
Ef skólinn þinn leyfir geturðu tekið fjarpróf í Nýheimum. Þú skráir þig í gegnum þinn eigin skóla og velur Höfn í Hornafirði – Nýheimar sem próftökustað.

Lesaðstaða
Lesaðstaða fyrir háskólanema er opin á opnunartíma Nýheima. Við hvetjum nemendur til að nýta sér hana í prófatíðinni.

Próftafla
Próftaflan er hér fyrir neðan. Athugið að hún getur breyst.

Nánari upplýsingar
Nejra Mesetović verkefnastjóri sér um prófaþjónustu fyrir háskólanema. Netfangið hennar er nejra@nyheimar.is.