Jólaprófin að hefjast í Nýheimum

Nú er jólaprófatíð hafin í Nýheimum þekkingarsetri og mun hún standa yfir í um þrjár vikur. Í ár eru skráð 72 próf, nemendurnir koma flestir frá Háskólanum á Akureyri, en einnig frá Háskóla Íslands og Háskólanum á Bifröst.

Allir háskólanemar eru velkomnir til að nýta sér aðstöðu og prófaþjónustu Nýheima, sem er í boði allt árið. Með þessu er stuðlað að auknu aðgengi fyrir Hornfirðinga til að stunda háskólanám óháð staðsetningu. Margir nemendur stunda fjarnám frá Hornafirði en aðrir nýta prófaþjónustuna til að komast fyrr heim í jólafrí eða sumarfrí. Gjald fyrir hvert próf er 4000 krónur, en nemendur greiða aldrei fyrir fleiri en fjögur próf á hverri önn.

Fjarpróf er hægt að taka í Nýheimum, svo lengi sem skólinn leyfir það. Skráning í prófin fer fram í gegnum viðkomandi skóla. Nejra, verkefnastjóri Nýheima þekkingarseturs, hefur umsjón með fjarprófum háskólanema en einnig býður setrið upp á námsaðstöðu fyrir háskólanema, meira má lesa um það hér.

Próftaflan er birt með fyrirvara um breytingar.