Lífleg og vel sótt ráðstefna í Nýheimum 17.–18. apríl

Ráðstefnan um íslenska þjóðfélagið er árlegur viðburður þar sem fræðafólk kynnir rannsóknir sínar á sviði hug- og félagsvísinda. Háskólar og aðrar þekkingarstofnanir á landsbyggðinni skiptast á að halda ráðstefnuna og í ár fór hún fram í Sveitarfélaginu Hornafirði, á vegum Nýheima þekkingarseturs. Þetta er í annað sinn sem setrið sér um viðburðinn en fyrra skiptið var árið 2017.  

Unga fólkið og framtíðin 

Ráðstefna hvers árs hefur yfirskrift sem setur ákveðinn ramma um þemu og efnistök. Yfirskriftin að þessu sinni var Unga fólkið og framtíðin, sem tengist megináherslum í starfi Nýheima þekkingarseturs með skýrum hætti.   

Fræðafólk úr fremstu röðum 

Ráðstefnuna sækja rannsakendur úr röðum fremsta hug- og félagsvísindafólks landsins. Lykilfyrirlesarar ráðstefnunnar voru dr. Þorvarður Árnason, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði og rannsóknadósent í þverfaglegum umhverfisfræðum, og dr. Sunna Símonardóttir, lektor við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri.  

Auk lykilfyrirlesaranna tveggja fluttu hátt í 70 rannsakendur erindi á ráðstefnunni. Dagskrá ráðstefnudaganna tveggja var þétt skipuð og viðfangsefnin afar fjölbreytt. Erindi voru flokkuð eftir þemum í málstofur og sem dæmi um viðfangsefni má nefna umhverfi, menntakerfið, líðan ungmenna og byggðafestu. Að loknu hverju erindi gafst tími til fyrirspurna og umræðna. 

Mikil ánægja meðal þátttakenda 

Fyrirlestradagskráin var öllum opin og við þökkum Hornfirðingum fyrir góða mætingu. Eftir því var tekið hversu vel ráðstefnan var sótt af heimamönnum. Mikil ánægja var meðal fyrirlesara og annarra þátttakenda og ekki spillti fyrir að blíðskaparveður ríkti á svæðinu meðan á ráðstefnunni stóð.