Húsavík 13. júní 2023

Samstarfsaðilar í SPECIAL verkefninu funduðu á Húsavík í húsakynnum Þekkingarnetsins á fjórða og síðasta staðfundi verkefnisins.

SPECIAL verkefnið er samstarfsverkefni sjö stofnanna frá sex Evrópulöndum (Svíþjóð, Ítalíu, Íslandi, Belgíu, Spáni og Rúmeníu) og er styrkt af Erasmus+ áætlun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Verkefnið miðar að því að styrkja, endurvekja og hlúa að „lífsleikni“ og „mjúkri“ færni ungs fólks sem hvorki stundar nám, atvinnu eða félagsstarf (NEETs) til að hjálpa þeim að (endur)aðlagast samfélögum og vinnumarkaði eftir COVID.

Á fundinum gátu samstarfsaðilar rætt stöðu verkefnisins og þá vinnu sem framundan er á lokasprettinum. Mikilvægt tækifæri fólst í því að fara ítarlega í mál eins og gæðamat, verkefnisstjórnun og kynningu á afurðum verkefnisins.

Á síðustu vikum verkefnisins munu samstarfsaðilarnir vinna að þróun PR4 verkefnispakkans, leiðbeinga til þeirra sem vilja nýta sér reynslu verkefnisins og samantektar til stefnumörkunar fyrir hagsmunaaðila. Þessi lokavinna skiptir miklu máli til að tryggja að verkefnisvinnan nýtist sem best í framhaldinu.

SPECIAL fræðsluefnið (PR3) er tilbúið og hægt að nálgast það á fræðsluvef verkefnisins. Fræðsluvefurinn hýsir afurðir verkefnisins s.s. skýrslur, þjálfunar-/fræðsluefni, leiðbeiningar og ráðleggingar og er nú aðgengilegur á www.projectspecial.eu á sex tungumálum (ensku, spænsku, ítölsku, íslensku, íslensku, rúmensku og sænsku). 

Á fundinum gafst gott tækifæri til að læra af samstarfinu og styrkja tegnslin fyrir frekara samstarf. 

Fyrir frekari fréttir af verkefninu: Vefsíða verkefnisins 

 Facebook og Youtube!