Landshlutasamtök sveitarfélaga, Samtök smáframleiðanda matvæla (SSFM) og RATA standa að Matsjánni, viðskiptahraðli fyrir smáframleiðendum matvæla. Matsjánni er ætlað að efla leiðtogafærini þátttakenda, efla þá í að þróa vörur og þjónustu og bæta tengsl sín í grein sinni. Verkefnið fer fram  í sjö lotum á netinu frá janúar og lýkur með uppskeruhátíð í apríl. 

Verkefnið hlaut styrk úr Matvælasjóði og er byggt upp að fyrirmynd Ratsjánnar sem er verkefni fyrir stjórnendur í ferðaþjónustu þróað af Íslenska ferðaklasanum.  

Umsóknarfrestur til að taka þátt í Matsjánni var til 20. nóvember og alls sóttu 84 aðilar um að taka þátt. 

Ánægjulegt var að sjá að flestar umsóknir um þátttöku bárust af Suðurlandi eða 18 alls, en umsækjendur Suðurlands komu úr 10 af 15 sveitarfélögum svæðisins, þar af 4 þátttakendur frá Sveitarfélagi Hornafjarðar. 

Hér má sjá dreifingu umsókna eftir landshlutum (fjöldi umsókna í hverjum landsfjórðungi og hlutfall hvers landshluta af umsóknum) og einnig sést dreifing þátttakanda innan Suðurlands.

\"\"\"\"