Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Suðurlands, um er að ræða fyrri úthlutun 2022. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar, og menningar á Suðurlandi. Umsækjendum er  bent á að kynna sér vel úthlutunarreglur sjóðsins, áherslur, markmið og mat á umsóknum sem má finna hér.

Við bendum einnig á ráðgjafasíðu SASS, þar sem er að finna leiðbeiningar um umsóknarskrif en umsækjendur eru einnig hvattir til að hafa samband við ráðgjafa á vegum SASS og fá aðstoð við gerð umsókna þeim að kostnaðarlausu. Hægt er að fá upplýsingar um ráðgjöfina á vefsíðu SASS, eða bóka tíma í ráðgjöf.

Guðný Gígja sér um ráðgjafaþjónustu SASS á Höfn og er staðsett í Nýheimum en einnig gefst fólki færi á að leita til annarra ráðgjafa SASS vilji þeir það frekar.

Sjóðurinn er samkeppnissjóður sem þýðir að vel mótuð verkefni, skýrar og góðar umsóknir, eru líklegri til að hljóta styrki.

Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 þann 1. mars 2022.

\"\"