Í upphafi sumars auglýsti Nýheimar þekkingarsetur laust til umsóknar sumarstarf hjá setrinu.

Starfið er í tengslum við átakið Sumarstörf fyrir námsmenn sem Vinnumálastofnun stendur fyrir.

Er þetta í fyrsta sinn sem setrið auglýsir laust til umsóknar sumarstarf fyrir námsmenn.

Engar umsóknir bárust vegna starfsins og er það vonandi til merkis um að Hornfirskir námmenn hafi nóg fyrir stafni í sumar á öðrum vettvangi innan svæðisins.

 

Í ljósi þessa var ákveðið að leita til samstarfsaðila Nýheima hjá Þekkingarneti Þingeyinga á Húsavík.

Þekkingarnetið auglýsti einnig sambærileg sumarstörf fyrir námsmenn og hafði fengið fjölda umsókna enda rík hefð fyrir sumarstörfum námsmanna hjá Þekkingarnetinu.

Því varð úr að sumarstarfsmaður Nýheima þekkingarseturs er ungur Húsvíkingur á leið í háskólanám.

Mun hann sinna verkefnum fyrir bæði setrin í sumar en hafa vinnuaðstöðu hjá Þekkingarnetinu á Húsavík.

Nýheimar þekkingarsetur hefur hug á að standa fyrir fleiri verkefnum í samstarfi við háskólanema og vonandi er þetta aðeins fyrsta skrefið í þeirri vegferð.

\"\"