Samtök sunnlenskra sveitafélaga (SASS) hafa úthlutað styrkjum úr Uppbyggingarsjóð Suðurlands. Um var að ræða fyrri úthlutun sjóðsins árið 2022 og voru umsóknir 90 talsins að þessu sinni.

Úthlutað var 35,9 m.kr. til 60 verkefna, þar af 17 verkefni í flokki atvinnu- og nýsköpunar og 43 í flokki menningarverkefna.  Af þessum 60 verkefnum sem hlutu styrk eru 8 verkefni í Sveitafélaginu Hornafirði, 2 í flokki atvinnu- og nýsköpunar og 6 í flokki menningar. Verkefnin 8 hlutu samtals 4,4 m.kr. í styrk.

Við viljum óska styrkhöfum innilega til hamingju og á sama tíma hvetja fólk með góðar hugmyndir að verkefnum að sækja um í næstu úthlutun sem verður á 4.október 2022.

Guðný Gígja (gudny@nyheimar.is) sinnir þjónustu og ráðgjöf til frumkvöðla og fyrirtækja í samstarfi við SASS, Samtök sunnlenskra sveitarfélaga og tekur hún vel á móti öllum á skrifstofu sinni í Nýheimum. Hún mun setja sig í samband við styrkþega á næstu dögum til að ræða framhaldið.

Lista yfir þau verkefni sem hlutu styrk má sjá hér

 

\"\"