Samtök sunnlenskra sveitarfélaga auglýsa til umsóknar styrki úr uppbyggingarsjóði Suðurlands.
Sjóðurinn er samkeppnissjóður með það markmið að styðja við fjölbreytt verkefni á svæðinu.
Horft er sérstaklega til verkefna sem efla fjölbreytileika atvinnulífsis, eru atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi,
efla menningarstarf og listsköpum eða styðja við jákvæða samfélagsþróun á suðurlandi.
Umsóknafrestur í uppbyggingarsjóð er 16. október 2017.
Viljum við hvetja áhugasama til að hafa samband við Guðrúnu ráðgjafa á vegum SASS og verkefnastjóra í Nýheimum.
Frekari upplýsingar á heimasíðu SASS.