Evrópurútan á ferð um landið – Höfn

Date

19 Sep 2024
Expired!

Time

15:00 - 17:00

Location

Nýheimar
Höfn

Á döfinni

January 2026
March 2026
May 2026
June 2026
August 2026
October 2026
November 2026
January 2027
February 2027
April 2027
June 2027
July 2027
No event found!
Load More

Í tilefni þess að 30 ár eru síðan að samningur um Evrópska efnahagssvæðisins (EES) tók gildi, og veitti Íslandi aðgang að auknum tækifærum til samstarfs í Evrópu, mun Evrópurútan fara hringinn um landið í september þar sem vakin verður athygli á árangri af Evrópuverkefnum í heimabyggð og tækifærum til framtíðar í alþjóðasamstarfi.

Evrópurútan mun mæta á Höfn 19. spetember og bjóða íbúum til fundar og samtals um tækfæri í heimabyggð til alþjóðasamstarfs í gegnum fjölmargar samstarfsáætlanir Evrópusambandins.

Fundurin verður haldinn í Nýheimum klukkan 15:00-17:00.

Evrópurútan er skipulögð af Rannís sem hefur umsjón með öllum helstu samstarfsáætlunum á sviði menntunar, menningar, vísinda og fyrirtækjasamstarfs og mun á hringferð sinni um landið veita upplýsingar um:

  • Erasmus+
  • Horizon Europe
  • Creative Europe
  • European Solidary Corps
  • Enterprise Europe Network
  • Digital Europe
  • LIFE
  • Nordplus

Við hvetjum öll til að mæta of kynna sér tækifæri til alþjóðasamstarfs til framtíðar fyrir sína heimabyggð.

Óskað er eftir skráningu á viðburðina fyrir áætlun veitinga á hverjum stað fyrir sig.

Hlekkur á skráningu: https://forms.office.com/e/mAgTA5tQkH

Nánar má lesa um viðburðaröðina á: https://www.rannis.is/vidburdir/evropusamvinna/evropurutan/