Það styttist í að vorprófin hefjist í Nýheimum þekkingarsetri og munu þau standa yfir á næstu vikum. Að þessu sinni eru próf í 26 mismunandi áföngum og alls taka 15 nemendur próf í Nýheimum.
Allir háskólanemar eru velkomnir til að nýta sér aðstöðu og prófaþjónustu Nýheima, sem er í boði allt árið. Ekki er lengur greitt fyrir prófaþjónustu í Nýheimum, sem er mikilvægt skref í átt að auknu jöfnuði í menntun og bættu aðgengi að háskólanámi.
Fjarpróf er hægt að taka í Nýheimum, svo lengi sem viðkomandi skóli heimilar það. Skráning í próf fer fram í gegnum viðkomandi skóla. Nejra, verkefnastjóri Nýheima þekkingarseturs, hefur umsjón með prófaþjónustu og veitir nánari upplýsingar á nejra@nyheimar.is.
Lesaðstaða háskólanema er opin á opnunartíma Nýheima og eru nemendur hvattir til að nýta sér rólega og góða vinnuaðstöðu á meðan á prófatímabili stendur.
Próftaflan er birt með fyrirvara um breytingar:
