Vorprófin að hefjast í Nýheimum

Það styttist í að vorprófin hefjist í Nýheimum þekkingarsetri og mun þau standa yfir í um þrjár vikur. Í ár eru skráð 49 próf, nemendurnir koma flestir frá Háskólanum á Akureyri, en einnig frá Háskóla Íslands.

Allir háskólanemar eru velkomnir til að nýta sér aðstöðu og prófaþjónustu Nýheima, sem er í boði allt árið. Með þessu er stuðlað að auknu aðgengi fyrir Hornfirðinga til að stunda háskólanám óháð staðsetningu. Margir nemendur stunda fjarnám frá Hornafirði en aðrir nýta prófaþjónustuna til að komast fyrr heim í jólafrí eða sumarfrí. Frá 1. janúar 2025 mun Nýheimar afnema gjöld fyrir prófaþjónustu sem nemendur hafa áður greitt til setursins, samkvæmt nýjum samningi. Þetta er stórt framfaraskref í að bæta aðgengi að menntun fyrir alla.

Fjarpróf er hægt að taka í Nýheimum, svo lengi sem skólinn leyfir það. Skráning í prófin fer fram í gegnum viðkomandi skóla. Nejra, verkefnastjóri Nýheima þekkingarseturs, hefur umsjón með fjarprófum háskólanema en einnig býður setrið upp á námsaðstöðu fyrir háskólanema, meira má lesa um það hér.

Próftaflan er birt með fyrirvara um breytingar.