#3 – Hvað er á döfinni?

Fréttabréf Nýheima þekkingarseturs
Málþing HeimaHafnar

Málþing HeimaHafnar HVAÐ EF ÉG VIL VERA HÉR er yfirskrift málþings sem Nýheimar þekkingarsetur stendur fyrir dagana 23. og 24. september nk. á Höfn í Hornafirði. Umfjöllunarefni málþingsins er ungt fólk, byggðafesta þess og framtíð á landsbyggðinni. Á málþinginu verður sjónum beint að mikilvægu hlutverki ungs fólks þegar kemur að þróun og eflingu byggða. Tilgangur […]
Heimasíða HeimaHafnar

Heimasíða HeimaHafnar Heimasíða HeimaHafnar er komin í loftið á slóðinni www.heimahofn.is. HeimaHöfn er samstarfsverkefni Nýheima þekkingarseturs og Sveitarfélagsins Hornafjarðar sem í sameiningu fjármagna 50% stöðu verkefnastjóra. Hugmyndin að verkefninu kviknaði undir lok árs 2023 og hefur þróast með tímanum í samstarfi við fjölbreyttan hóp lykilaðila. Með verkefninu er sjónum beint að þróun og sjálfbærni byggðar og […]
#2 – Hvað er á döfinni?

Fréttabréf Nýheima þekkingarseturs
Góð þátttaka á grunnnámskeiði í gervigreind

Góð þátttaka á grunnnámskeiði í gervigreind Síðastliðinn þriðjudag stóð Nýheimar þekkingarsetur fyrir grunnnámskeiði í gervigreind sem ætlað var byrjendum. Um fimmtán manns mættu í Nýheima þar sem markmiðið var að kynna fyrir þátttakendum hvað gervigreind er, hvernig hún virkar og getur nýst í daglegu lífi, vinnu og námi. Á námskeiðinu fengu þátttakendur að kynnast því […]
Einyrkja- og frumkvöðlakaffi með Alice Sowa

Einyrkja- og frumkvöðlakaffi með Alice Sowa Þriðjudaginn 27. maí síðastliðinn hittist áhugafólk um nýsköpun í Nýheimum á einyrkja- og frumkvöðlakaffi með Alice Sowa, stofnanda GRÆNALAUTAR ehf. Alice Sowa er iðnhönnuður og textíllistakona sem hefur verið búsett í Skaftafelli í Öræfum frá árinu 2023. Í vorúthlutun Uppbyggingarsjóðs SASS fékk Grænalaut ehf styrk fyrir verkefnið Arctic Fibers […]
#1 – Hvað er á döfinni?

Fréttabréf Nýheima þekkingarseturs
Vorprófin að hefjast í Nýheimum

Vorprófin að hefjast í Nýheimum Það styttist í að vorprófin hefjist í Nýheimum þekkingarsetri og mun þau standa yfir í um þrjár vikur. Í ár eru skráð 49 próf, nemendurnir koma flestir frá Háskólanum á Akureyri, en einnig frá Háskóla Íslands. Allir háskólanemar eru velkomnir til að nýta sér aðstöðu og prófaþjónustu Nýheima, sem er […]
12. ársfundur Nýheima þekkingarseturs

12. ársfundur Nýheima þekkingarseturs 12. ársfundur Nýheima þekkingarseturs var haldinn í Nýheimum síðastliðinn miðvikudag, 9. apríl. Dr. Lilja Jóhannesdóttir, formaður stjórnar setursins, var fundarstjóri og flutti hún jafnframt skýrslu stjórnar. Hugrún Harpa, forstöðumaður setursins, sagði frá starfsemi setursins á árinu, helstu verkefnum auk þess sem hún kynnti ársreikning 2024. Verkefnastjóri setursins, Eyrún Fríða, flutti erindi […]
17 styrkir til Hornfirðinga

17 styrkir til Hornfirðinga Vorúthlutun úr Uppbyggingasjóði Suðurlands var í vikunni, eða 8. apríl. Mörg áhugaverð verkefni sóttu um styrki að þessu sinni og áttu Hornfirðingar 28 umsóknir af þeim 122 sem bárust í sjóðinn eða um 23%. Uppbyggingasjóður Suðurlands veitir verkefnastyrki í tveimur flokkum, atvinnuþróun- og nýsköpun og menningu. Í heildina bárust 31 umsókn […]