Ársfundur – allir velkomnir!

Ársfundur – allir velkomnir! Ársfundur Nýheima þekkingarseturs verður haldinn í Nýheimum miðvikudaginn 9. apríl kl. 14:00. Dagskrá: Venjubundin ársfundarstörf. Eyrún Fríða Árnadóttir verkefnastjóri Nýheima þekkingarseturs kynnir verkefnið HeimaHöfn. Allir velkomnir og hvattir til að mæta. Stjórn Nýheima þekkingarseturs
Kynningarfundur fyrir atvinnulífið

Kynningarfundur fyrir atvinnulífið Miðvikudaginn 26. mars hélt Nýheimar þekkingarsetur kynningu fyrir atvinnulífið í Sveitarfélaginu Hornafirði, í fundarsal Nýheima. Fundurinn var haldinn til þess að gera fyrirtækjum og einstaklingum í atvinnurekstri kleift að kynna sér þá starfsemi sem Nýheimar þekkingarsetur býður upp á og þá þjónustu sem atvinnulífið getur sótt sér að kostnaðarlausu til setursins. Þeir […]
Vorúthlutun Uppbyggingarsjóð Suðurlands

Vorúthlutun Uppbyggingarsjóð Suðurlands Uppbyggingarsjóður Suðurlands er samkeppnissjóður sem rekinn er af Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga (SASS). Sjóðurinn styrkir sunnlensk verkefni á sviði menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar og fer úthlutun fram ár hvert að vori og hausti. Umsóknarfrestur í sjóðinn rann út þann 4. mars síðastliðinn fyrir vorúthlutunina. Hugrún Harpa er byggðaþróunarfulltrúi SASS í Sveitarfélaginu Hornafirði, en […]
HeimaHöfn kynnir fjölbreytt tækifæri í ferðaþjónstu

HeimaHöfn kynnir fjölbreytt tækifæri í ferðaþjónstu Þann 20. febrúar síðastliðinn komu saman nemendur FAS til að heyra frá þeim tækifærum sem geta falist í ferðaþjónustu á svæðinu. Viðburðurinn var hluti af verkefninu HeimaHöfn þar sem unnið er að því að efla þekkingu ungmenna á samfélaginu sínu, opna augu þeirra gagnvart tækifærum á svæðinu og hvetja […]
Tveir verkefnastjórar taka til starfa

Tveir verkefnastjórar taka til starfa! Eva Bjarnadóttir og Eyrún Fríða Árnadóttir hafa verið ráðnar til starfa sem verkefnastjórar hjá Nýheimum þekkingarsetri. Eyrún er með BA próf í Uppeldis- og menntunarfræði og MA próf í kynjafræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað við kennslu við Grunnskóla Hornafjarðar og situr í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Þá hefur hún […]
Nýheimadagurinn

Nýheimadagurinn Þann 30. janúar var Nýheimadagur haldinn þar sem stofnanir í Nýheimum komu saman til að kynna starfsemi sína. Tilgangur viðburðarins var að veita innsýn í þau fjölbreyttu verkefni sem unnið er að hjá stofnunum í húsinu og skapa vettvang fyrir samtal og tengslamyndun. Átta stofnanir tóku þátt og kynntu starfsemi sína og verkefni. Kynningarnar […]
Heimsókn í Skinney-Þinganes: HeimaHöfn opnar augu nemenda fyrir tækifærum

Heimsókn í Skinney-Þinganes: HeimaHöfn opnar augu nemenda fyrir tækifærum Það var sannarlega líf og fjör þegar nemendur FAS heimsóttu Skinney-Þinganes, stærsta fyrirtæki Hornafjarðar. Heimsóknin var liður í verkefninu HeimaHöfn. HeimaHöfn er samstarfsverkefni Nýheima þekkingarseturs og Sveitarfélagsins Hornafjarðar sem miðar að því að kynna ungu fólki fjölbreytt tækifæri í heimabyggð. Skinney-Þinganes, með um 350 starfsmenn og […]
Nýheimar þekkingarsetur heimsótti Stryn í Noregi

Nýheimar þekkingarsetur heimsótti Stryn í Noregi Dagana 13.–17. janúar fóru starfsmenn Nýheima þekkingarseturs í heimsókn til Stryn í Noregi til að hitta samstarfsaðila sína þaðan, Nordfjordkompaniet og samstarfsaðila frá Söderhamn í Svíþjóð, Centrum för flexibelt lärande. Markmið heimsóknarinnar var að efla tengsl, miðla þekkingu og þróa verkefni sem snýr að valdeflingu ungs fólks. Í heimsókninni […]
Listi af námskeiðum í fjarnámi – vorönn

Listi af námskeiðum í fjarnámi – vorönn Sí- og endurmenntunarstöðvar um land allt bjóða nú fjölbreytt úrval fjarnámskeiða sem henta fólki á öllum aldri. Framboðið hefur aukist með aukinni eftirspurn eftir sveigjanlegum leiðum til náms. Skráningarskilyrði eru mismunandi eftir námskeiðum, svo við mælum með að kynna sér þau vel áður en skráð er. Eftirfarandi námskeið […]
Nýheimar þekkingarsetur skrifar undir nýjan samning við háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Nýheimar þekkingarsetur skrifar undir nýjan samning við háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið Nýheimar þekkingarsetur hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið (HVIN). Unnið hefur verið að endurnýjun samnings um nokkurt skeið og því afar ánægjulegt að þessum áfanga sé nú náð. Samningurinn felur í sér vissa áherslubreytingu frá upphaflegum samningi setursins […]