Menntun

Menntastoð Nýheima þekkingarseturs

Markmið Nýheima þekkingarseturs á sviði menntunar er að efla menntun og miðlun þekkingar í samstarfi við mennta-, fræðslu- og rannsóknastofnanir. Sérstök áhersla er lögð á að stuðla að bættu framboði og aukinni fjölbreytni náms fyrir íbúa svæðisins alla ævi. Setrið leitast við að tryggja aðgengi að góðu námi, miðla upplýsingum um námstækifæri og hvetja alla íbúa til að sækja sér hvers konar menntun og fræðslu.

Nýheimar vinna ötullega að eflingu fjarnáms og stuðningi við fjarnema. Mikilvægur liður í því er að skapa hvetjandi námsumhverfi þar sem nemendum gefst kostur á að vera hluti af fræðasamfélagi og stunda nám á eigin forsendum í heimabyggð.

Þjónusta við háskólanema er eitt af föstu verkefnum Nýheima þekkingarseturs. Í samstarfi við Sveitarfélagið Hornafjörð veitir setrið háskólanemum aðgang að námsveri í Nýheimum. Setrið sinnir einnig þjónustu við háskólanema vegna próftöku, í samstarfi við háskóla landsins.

Þekkingarsetrið hefur í starfi sínu unnið með óformlega menntun og staðið fyrir ýmsum námskeiðum, meðal annars tengdum fjölþjóðlegum samstarfsverkefnum styrktum af Erasmus+, menntaáætlun Evrópusambandsins. Námskeiðin hafa verið fjölbreytt og náð til ólíkra hópa samfélagsins. Sérstaklega er leitast við að bjóða upp á námskeið fyrir ungt fólk, með áherslu á valdeflingu, samfélagsþátttöku og sjálfstyrkingu ungmenna.   

Menntahvöt Hornafjarðar

Menntahvöt Hornafjarðar er samstarfsverkefni menntastofnana á Hornafirði. Nýheimar þekkingarsetur leiðir verkefnið en samstarfsaðilar eru Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu, Fræðsluskrifstofa Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Háskólafélag Suðurlands, Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Hornafirði og Fræðslunetið – símenntun á Suðurlandi.  

Markmiðið með verkefninu er að styðja við menntun íbúa á Suðausturlandi. Áhersla er lögð á miðlun upplýsinga um námstækifæri og hvatningu og stuðning við íbúa til að sækja sér hvers konar menntun og fræðslu. Sérstaklega verður lögð áhersla á tækifæri íbúa til menntunar óháð búsetu. Hópurinn sem að verkefninu stendur mun einnig leitast við að styðja fyrirtæki og stofnanir til að efla starfsþróun og endurmenntun starfsmanna sinna. 

Menntastofnanir Nýheima

Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu og Fræðslunet Suðurlands eru þær formlegu menntastofnanir sem starfa í Nýheimum. Nám í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu er fyrst og fremst almennt bóknám auk starfsnáms í samræmi við eftirspurn hverju sinni. Fræðslunetið – símenntun á Suðurlandi stendur fyrir námskeiðum fyrir fullorðna. Námskeiðin eru af ýmsum toga, meðal annars einingabært nám á framhaldsskólastigi. Fræðslunetið skipuleggur námskeið eftir óskum fyrirtækja og stofnana, greinir fræðsluþarfir og útbýr fræðsluáætlanir.

Flestar aðrar stofnanir innan Nýheima sinna einnig menntun og miðlun formlegrar og óformlegrar þekkingar, með einum eða öðrum hætti. Stofnanir taka reglulega á móti skólahópum, halda erindi og kynningar ásamt því að skipuleggja og veita leiðsögn í vettvangsferðum. Jafnframt hafa stofnanir komið að framkvæmd námskeiða og miðlun þekkingar í gegnum þátttöku sína í fræðslutengdum verkefnum, innlendum og fjölþjóðlegum.

Þjónusta og aðstaða fyrir námsmenn í Nýheimum

Nýheimar þekkingarsetur býður alla háskólanema, hvort sem er í stað- eða fjarnámi, velkomna í Nýheima til lengri eða skemmri tíma. Í Nýheimum geta nemar fengið aðgang að námsveri og hefur setrið einnig haft umsjón með fjarprófum háskólanema á Hornafirði. Nánari upplýsingar um þjónustu og aðstöðu fyrir nemendur í Nýheimum má finna hér á síðunni, undir flipanum Háskólanemar.

Þekkingarsetrið hefur í auknum mæli haft umsjón með prófum á sviði símenntunar í samstarfi við skóla og aðrar fræðslustofnanir víðsvegar á landinu. Nánari upplýsingar um þjónustu þekkingarsetursins vegna próftöku er að finna undir flipanum Prófaþjónusta.

Á bókasafni Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar býðst nemendum fjölbreytt þjónusta. Þar gefst öllum kostur á að eignast bókasafnskort og fá almenna bókasafnsaðstoð, m.a. vegna heimildaleitar, millisafnalána, ljósritunar og útprentunar.

Fræðsluefni

Jöklamælingar hjá FAS

Síðastliðin 30 ár hefur Framhaldsskólinn í Austur – Skaftafellssýslu sinnt rannsókn þar sem kannaðar hafa verið breytingar á ástandi jökla frá ári til árs.