Rannsóknastoð Nýheima þekkingarseturs

Eitt af markmiðum Nýheima þekkingarseturs er að efla rannsóknir á samfélagi, náttúrufari og atvinnulífi og hafa frumkvæði að rannsóknaverkefnum og rannsóknastarfi á Suðausturlandi. Enn fremur að stuðla að samstarfi og aukinni starfsemi þeirra aðila er stunda rannsóknir á svæðinu. Lögð er áhersla á að aðstoða eftir fremsta megni þá sem sinna rannsóknum, hvort sem það eru nemendur eða starfandi rannsakendur.

Setrið vinnur að miðlun upplýsinga um möguleg rannsóknaverkefni, hvetur til þátttöku fyrirtækja, stofnana og einstaklinga í rannsóknum og leiðbeinir um tækifæri í innlendum og erlendum samkeppnissjóðum.

Samfélagsrannsóknir, einkum tengdar málefnum ungmenna á landsbyggðinni, hafa verið í brennidepli hjá Nýheimum þekkingarsetri. Víðtækar áherslur setursins hafa leitt af sér þátttöku í margvíslegum rannsóknartengdum verkefnum, finna má skýrslur verkefna hér.

Rannsóknastofnanir Nýheima

Ólíkar stofnanir eru aðilar að Nýheimum þekkingarsetri og mynda samstarfsnet setursins. Flestar þessara stofnana sinna rannsóknum að einhverju marki, í mismiklum mæli þó. Þær stofnanir sem sinna rannsóknum hvað mest, auk þekkingarsetursins, eru: Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands, Náttúrustofa Suðausturlands, Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu, og Menningarmiðstöð Hornafjarðar.

Stofnanir Nýheima hafa haft frumkvæði að margs konar hagnýtum rannsóknum og verkefnum og eru viðfangsefnin fjölbreytt, enda nægur efniviður til rannsókna á Suðausturlandi. Má þar nefna rannsóknir á jöklum, fuglum, fiðrildum, viðhorfi ungra íbúa, viðhorfi ferðamanna, menningarminjum og náttúruvernd.

Þjónusta og ráðgjöf vegna rannsókna

Stofnanir í Nýheimum taka að sér ýmsar rannsóknir og kannanir fyrir sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki. Aðilar í Nýheimum hafa meðal annars sinnt gerð og fyrirlögn spurningakannana, viðtalsrannsóknum og úrvinnslu viðtala, skrifum rannsóknaskýrslna og kynningum á niðurstöðum rannsókna og verkefna. Hafa stofnanirnar þá ýmist fullunnið rannsóknir og verkefni eða komið að einstökum verkþáttum. Jafnframt hafa stofnanirnar veitt ráðgjöf, aðstoð við lokafrágang og prófarkalestur á skýrslum nemenda og annarra einstaklinga sem stunda rannsóknir.

laptop, mac, computer-2557615.jpg

Aðstaða fyrir rannsakendur

Rannsakendur sem dvelja á svæðinu til lengri eða skemmri tíma geta fengið aðgang að vinnuaðstöðu í Nýheimum. 

Nánari upplýsingar um aðstöðu fyrir rannsakendur veitir Hugrún Harpa forstöðumaður Nýheima þekkingarseturs hugrunharpa@nyheimar.is

Fræðsluefni

Hornafjordur Research Center

Á YouTube rás Rannsóknarsetri Hornafjarðar má finna upptökur af ýmsum fyrirlestrum og viðburðum sem hafa staðið fyrir á undanförnum misserum:

Staða og hluverk þekkingarsetra í byggðaþróun

Anna Guðrún Edvardsdóttir, rannsakandi og sérfræðingur við Háskólann á Hólum ræðir stöðu og hluverk þekkingarsetra í byggðaþróun.

Skúmaskot

Fræðslumyndband um skúminn sett saman úr stiklum sem teknar voru við rannsóknir á varpi skúms á Suðausturlandi. Myndbandið er unnið af Lilju Jóhannesdóttur starfsmanni Náttúrustofu Suðausturlands og var gert árið 2022. Myndbandið var styrkt af Uppbyggingarsjóði sunnlenskra sveitafélaga og er hluti af örmyndbandagerðinni Vísbandi.

After Ice

Hrífandi stuttmynd um bráðnun sex skriðjökla Vatnajökuls. Í nýrri heimildamynd nýta fræðimenn við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Höfn í Hornafirði og Dundee-háskóla í Skotlandi nýjustu tækni til þess að varpa ljósi á þau miklu áhrif sem hlýnandi loftslag hefur haft á bráðnun jökla á Íslandi.

Hinn stóri samhljómur Sandsins

Heimildarmyndin Hinn stóri samhljómur Sandsins eftir Þorvarð Árnason, vísindamann og forstöðumann rannsóknaseturs HÍ á Höfn, og Gunnlaug Þór Pálsson kvikmyndagerðarmann. Í nýju myndinni er áhersla á breytingar vegna loftslagsvár en linsunni er beint að landsvæði sem hefur löngum verið þekkt fyrir sérstæða fegurð og mikilfengleik en það skartar meðal annars Jökulsárlóni og Fjallsárlóni. Á þessu svæði blasa afar vel við áhrif lofslagsbreytinga en Jökulsárlón var t.d. varla til fyrir tæpri öld.

SAINT: Slow Adventure in Northern Territories

Fjölþjóðlegt verkefni, styrkt af Norðurslóðaáætlun Evrópusambandins (NPA) 2016-2018, um þróun yndisævintýra (e. slow adventure tourism) á Íslandi, Skotlandi, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð, Írlandi og Norður-Írlandi.