Frábær mæting og mikil gleði á Töfranámskeiði Einars!

Þann 6. nóvember síðastliðinn fór fram töfranámskeið í Nýheimum þar sem börn á aldrinum 8-12 ára fengu að stíga inn í heillandi heim töfra. Mjög góð mæting var á námskeiðið sem var fullbókað en yfir tuttugu börn mættu til leiks.

Leiðbeinandi námskeiðsins, Einar Aron töframaður, sýndi skemmtileg töfrabrögð og kenndi brellur sem þátttakendur gátu æft sig í. Mikil ánægja var meðal barnanna sem eru vafalaust að æfa töfrabrögðin þessa dagana með þeim töfraáhöldum sem þau fengu til eignar að námskeiði loknu.

Viðburðurinn var einstök upplifun fyrir unga töframenn. Við þökkum öllum þátttakendum sem mættu og hlökkum við til að sjá ykkur á næstu viðburðum!