Í síðustu viku hittum við nemendur í FAS á tveimur fundum í hádeginu. Við buðum stelpum og strákum að koma á sitthvorn fundinn með okkur, þiggja pizzu og veitingar og eiga gott spjall um áherslu ársins í HeimaHöfn sem er samfélagsþátttaka. Það er nauðsynlegur þáttur HeimaHafnar að eiga í reglulegum og virkum samskiptum við unga fólkið okkar. Við ræddum um þeirra upplifun af félagslífi í samfélaginu, tækifærum til þátttöku og virkni í samfélaginu, hvað er gott og hvað mætti betur fara. Þá ræddum við líka hvernig verkefnið HeimaHöfn getur stutt við þau og aukið tækifæri þeirra til að taka virkan þátt í samfélaginu.