Einn af lykilþáttum HeimaHafnar er að vera tenging ungs fólks við samfélagið heima, þegar að þau hafa farið annað, hvort sem er í styttri eða lengri tíma. Til þess að kynna verkefnið fyrir þeim sem farin voru, áður en verkefnið fór af stað, héldum við því viðburð í Reykjavík í haust. Við buðum þeim að koma á Stúdentakjallarann og fá kynningu á verkefninu og hvað við getum gert fyrir þau sem hafa þegar farið annað í nám.
Við þökkum þeim sem mættu kærlega fyrir gott og gefandi spjall og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.