Í upphafi skólaárs boðaði HeimaHöfn til þriggja kynningarfunda innan Framhaldsskóla Austur Skaftafellssýslu um verkefnið. Haldinn var einn fundur á skólatíma fyrir nemendur framhaldsskólans, þar sem farið var yfir verkefni síðasta árs og viðburði og verkefni komandi skólaárs. Þá var haldinn fundur með kennurum og starfsfólki skólans þar sem farið var yfir komandi ár og rætt um möguleika á frekara samstarfi og hvernig verkefnið gæti stutt betur við starfsemi skólans.

Að lokum fékk HeimaHöfn að koma inn á kynningarfund fyrir foreldra nemenda. Samstarf við alla aðila er verkefninu gríðarlega mikilvægt og því nauðsynlegt að foreldrar séu einnig upplýstir um verkefnið og verkþætti þess á komandi ári.

Við þökkum öllum sem sátu fundina sérstaklega vel fyrir komuna og gefandi og gott samtal sem við nýtum áfram inn í þróun verkefnisins.