Nýsköpun
Nýsköpunarstoð Nýheima þekkingarseturs
Nýsköpun er ein af stoðum Nýheima þekkingarseturs og hefur setrið það markmið að taka virkan þátt í að móta öflugt nýsköpunarumhverfi á Suðausturlandi. Sér í lagi með því að vera vettvangur skapandi samvinnu í nýsköpun á Suðausturlandi, með samstarfi við helstu atvinnugreinar á Hornafirði, frumkvöðla af ýmsum toga og lista- og handverksfólk.
Nýsköpunarnetið
Nýsköpunarnetið er samstarfsvettvangur Nýheima þekkingarseturs, Vöruhússins, Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Háskólafélags Suðurlands. Markmið netsins er að efla nýsköpun í sveitarfélaginu með áherslu á frumkvöðla. Eitt af helstu verkefnum þess var opnun frumkvöðlahreiðurs í Miðbæ á Höfn, sem er hluti af netverki fyrir frumkvöðla á Suðurlandi undir forystu Háskólafélags Suðurlands. Sveitarfélagið útvegar aðstöðu hreiðursins, meðan þekkingarsetrið veitir stuðning og ráðgjöf. Meðal verkefna netsins er miðlun upplýsinga um nýsköpunarstuðning og vikulegt frumkvöðla- og einyrkjakaffi til að efla tengsl og hlusta á þarfir þátttakenda.
Nýsköpunarstofnanir Nýheima
Stofnanir innan Nýheima hafa unnið að nýsköpunarverkefnum ýmiss konar. Vöruhúsið hefur verið vettvangur skapandi greina á Hornafirði í samvinnu Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu, Sveitarfélagsins Hornafjarðar og frumkvöðla, en þar geta einstaklingar, stofnanir og fyrirtæki nýtt aðstöðuna, sótt sér þekkingu og treyst tengslanet sitt á sviði sköpunar. Framhaldsskólinn hefur verið að efla verk- og listnámsgreinar í samstarfi við Vöruhúsið meðal annars, ásamt því að hafa tekið þátt í verkefnum sem miða að því að auka veg frumkvöðlafræðslu.
Nýsköpun í ferðaþjónustu hefur verið mikil og hefur Ríki Vatnajökuls ferðaþjónustu, matvæla og menningarklasi Suð- Austurlands haft frumkvæði að ýmsum þróunarverkefnum á sviði ferðaþjónustu á Hornafirði. Rannsóknasetrið á Hornafirði hefur einnig unnið náið með ferðaþjónustuaðilum á Hornafirði í fjölda hagnýtra verkefna í tengslum við nýsköpun í ferðaþjónustu.
Fræðsluefni
Skapa.is
Skapa.is er nýsköpunargátt, upplýsingaveita og fræðsluvefur fyrir frumkvöðla og aðra aðila sem eru að stíga sín fyrstu skref í nýsköpunarumhverfinu. Nýsköpunargáttin er hugsuð sem stuðningur fyrir nýsköpunarumhverfið á Íslandi. Með kortlagningu stuðningsumhverfi nýsköpunar hér á landi er öllum helstu upplýsingum safnað á einn stað.
Mikilvægi nýsköpunar í sjávarútveg
Föstudagshádegi í Nýheimum 13. desember hélt Guðmundur H. Gunnarsson fyrirlestur um Mikilvægi nýsköpunar í sjávaútvegi á tímum fjórðu iðnbyltingarinnar.