Rannsóknastoð Nýheima þekkingarseturs
Rannsóknir eru ein af fjórum stoðum Nýheima þekkingarseturs en markmið setursins er að efla sérstaklega rannsóknir á samfélagi, náttúrufari og atvinnulífi á Suðausturlandi. Þá er setrinu ætlað að hafa frumkvæði að rannsóknaverkefnum og rannsóknastarfi auk þess að stuðla að samstarfi og aukinni starfsemi þeirra aðila er stunda rannsóknir á svæðinu.
Þekkingarsetrið hefur lagt áherslu á samfélagsrannsóknir og sérstaklega beint sjónum sínum að málefnum ungmenna á landsbyggðinni. Víðtækar áherslur setursins hafa hins vegar leitt af sér þátttöku í margvíslegum rannsóknartengdum verkefnum, finna má skýrslur verkefna á heimasíðu.
Rannsóknastofnanir Nýheima
Ólíkar stofnanir eru aðilar að Nýheimum þekkingarsetri og mynda samstarfsnet setursins. Flestar þessara stofnana sinna rannsóknum að einhverju marki, þó í mis miklu mæli. Þær stofnanir er sinna rannsóknum hvað mest auk þekkingarsetursins eru: Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands, Náttúrustofa Suðausturlands, Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu, og Menningarmiðstöð Hornafjarðar.
Stofnanir Nýheima hafa haft frumkvæði að margs konar hagnýtum rannsóknum og verkefnum og eru viðfangsefnin fjölbreytt, enda nægur efniviður til rannsókna á Suðausturlandi. Má þar nefna rannsóknir á jöklum, fuglum, fiðrildum, viðhorfi ungra íbúa, viðhorfi ferðamanna, menningarminjar, náttúruvernd o.fl.
Þjónusta og ráðgjöf vegna rannsókna
Stofnanir í Nýheimum taka að sér ýmsar rannsóknir og kannanir fyrir sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki. Aðilar í Nýheimum hafa meðal annars tekið að sér: gerð og fyrirlögn spurningakannana, viðtalsrannsóknir og úrvinnslu viðtala, skrif rannsóknaskýrslna og kynningu á niðurstöðum rannsókna og verkefna. Hafa stofnanir þá ýmist fullunnið rannsóknir eða komið að einstökum verkþáttum rannsókna og verkefna. Jafnframt hafa stofnanirnar veitt ráðgjöf, aðstoð við lokafrágang á skýrslum og prófarkalestur til nemenda og annarra einstaklinga sem stunda rannsóknir.
Aðstaða fyrir rannsakendur
Rannsakendur sem dvelja á svæðinu til lengri eða skemmri tíma geta fengið aðgang að vinnuaðstöðu í Nýheimum.
Nánari upplýsingar um aðstöðu fyrir rannsakendur veitir Hugrún Harpa forstöðumaður Nýheima þekkingarseturs hugrunharpa@nyheimar.is
Fræðsluefni
Hornafjordur Research Center
Á YouTube rás Rannsóknarsetri Hornafjarðar má finna upptökur af ýmsum fyrirlestrum og viðburðum sem hafa staðið fyrir á undanförnum misserum:
Staða og hluverk þekkingarsetra í byggðaþróun
Anna Guðrún Edvardsdóttir, rannsakandi og sérfræðingur við Háskólann á Hólum ræðir stöðu og hluverk þekkingarsetra í byggðaþróun.
Skúmaskot
Fræðslumyndband um skúminn sett saman úr stiklum sem teknar voru við rannsóknir á varpi skúms á Suðausturlandi. Myndbandið er unnið af Lilju Jóhannesdóttur starfsmanni Náttúrustofu Suðausturlands og var gert árið 2022. Myndbandið var styrkt af Uppbyggingarsjóði sunnlenskra sveitafélaga og er hluti af örmyndbandagerðinni Vísbandi.
After Ice
Hrífandi stuttmynd um bráðnun sex skriðjökla Vatnajökuls. Í nýrri heimildamynd nýta fræðimenn við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Höfn í Hornafirði og Dundee-háskóla í Skotlandi nýjustu tækni til þess að varpa ljósi á þau miklu áhrif sem hlýnandi loftslag hefur haft á bráðnun jökla á Íslandi.
Hinn stóri samhljómur Sandsins
Heimildarmyndin Hinn stóri samhljómur Sandsins eftir Þorvarð Árnason, vísindamann og forstöðumann rannsóknaseturs HÍ á Höfn, og Gunnlaug Þór Pálsson kvikmyndagerðarmann. Í nýju myndinni er áhersla á breytingar vegna loftslagsvár en linsunni er beint að landsvæði sem hefur löngum verið þekkt fyrir sérstæða fegurð og mikilfengleik en það skartar meðal annars Jökulsárlóni og Fjallsárlóni. Á þessu svæði blasa afar vel við áhrif lofslagsbreytinga en Jökulsárlón var t.d. varla til fyrir tæpri öld.
SAINT: Slow Adventure in Northern Territories
Fjölþjóðlegt verkefni, styrkt af Norðurslóðaáætlun Evrópusambandins (NPA) 2016-2018, um þróun yndisævintýra (e. slow adventure tourism) á Íslandi, Skotlandi, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð, Írlandi og Norður-Írlandi.