Á síðasta ári hlaut Nýheimar þekkingarsetur styrk úr Örvari, styrkjasjóði menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins fyrir verkefnið Samfélagið okkar. Með verkefninu er leitast við að skapa vettvang og styðja ungmenni til að rýna og koma skoðunum sínum á framfæri á eigin forsendum með þátttöku, sköpun og samvinnu.
Verkefnið var unnið með Ungmennaráði Hornafjarðar sem tók þátt í vinnustofu þar sem þau greindu samfélagið sitt út frá þremur ólíkum viðfangsefnum: atvinnutækifærum, samfélagsþátttöku og nýsköpun. Kortlögðu þau styrkleika og helstu kosti samfélagsins út frá þessum þremur þáttum. Að því loknu settu ungmennin saman handrit að myndböndum sem endurspeglaði sýn þeirra á umrædda þætti samfélagsins. Á seinni vinnudegi verkefnisins naut hópurinn liðsinnis Harðar Þórhallssonar kvikmyndagerðarmanns sem vann með hópnum að upptökum á efni á staðnum.
Við þökkum Ungmennaráði Hornafjarðar, Emil Morávek og Herði Þórhallssyni kærlega fyrir samstarfið og hlökkum til þess að sýna ykkur afraksturinn, en hér má sjá fyrsta myndbandið af þremur.