Upplýsingasíða vegna ráðstefnunnar um íslenska þjóðfélagið
Dagana 17.–18. apríl fer átjánda ráðstefnan um íslenska þjóðfélagið fram í Nýheimum. Ráðstefnan er haldin árlega á ólíkum stöðum á landinu og að þessu sinni annast Nýheimar þekkingarsetur skipulagningu viðburðarins. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Unga fólkið og framtíðin.
Fyrirlestrar og vinnustofur verða öllum opin. Við hvetjum áhugasöm til að mæta í Nýheima í vor og hlýða á fjölbreytt erindi á sviði hug- og félagsvísinda. Dagskrá ráðstefnunnar verður birt þegar nær dregur.