Þann 18. nóvember síðastliðinn var haldið vel heppnað piparkökuleirkvöld! Viðburðurinn vakti mikla lukku og var þátttaka góð.
Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá fjölskyldur njóta saman, þar sem börn og foreldrar leiruðu, skáru út, skreyttu og máluðu sínar eigin “piparkökur” úr leir. Allir fóru heim með bros á vör.
Við þökkum öllum þátttakendum fyrir komuna og hlökkum við til að bjóða upp á fleiri skapandi viðburði í framtíðinni.